Ferill 435. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 619 — 435. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um Einangrunarstöðina í Reykjanesbæ.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hver er og hefur verið meðalbiðtími fyrir gæludýr í Einangrunarstöðina í Reykjanesbæ síðustu þrjú ár?
2. Telur ráðherra ástæðu til að bregðast með einhverjum hætti við löngum biðtíma eftir plássi í Einangrunarstöðina og ef svo er, hvernig?
3. Hefur komið til skoðunar í ráðuneytinu að breyta fyrirkomulagi innflutnings á gæludýrum og taka t.d. upp evrópska gæludýrapassann?
Skriflegt svar óskast.