Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 644  —  446. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um rafmyntir.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hefur ráðuneytið eða undirstofnanir þess skilgreint sérstaklega einkenni viðskipta með rafmyntir, svo sem Bitcoin?
     2.      Hver er í megindráttum lagaumgjörð slíkra viðskipta, m.a. hvað skattframkvæmd og skatteftirlit varðar?
     3.      Telur ráðherra ástæðu til þess að taka viðskipti með rafmyntir til nánari skoðunar?


Skriflegt svar óskast.