Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 646 — 448. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um lífeyrissjóðsgreiðslur til örorkulífeyrisþega.
Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
1. Hversu margir örorkulífeyrisþega með 75% örorkumat í gildi hjá Tryggingastofnun ríkisins, TR, fengu örorkulífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóði/lífeyrissjóðum á árunum 2007–2017 og hversu hátt hlutfall örorkulífeyrisþega er það? Svar óskast sundurliðað eftir kyni og aldri við fyrsta mat hjá TR.
2. Hversu margir þessara örorkulífeyrisþega féllu í eftirfarandi tekjuflokka, sundurliðað eftir árum, kyni og aldri við fyrsta mat hjá TR:
a. undir 19.999 kr.,
b. 20.000–39.999 kr.,
c. 40.000–59.999 kr.,
d. 60.000–79.999 kr.,
e. 80.000–99.999 kr.,
f. 100.000–129.999 kr.,
g. 130.000–159.999 kr.,
h. 160.000–189.999 kr.,
i. 190.000–219.999 kr.,
j. 220.000 kr. eða yfir?
3. Hversu margir örorkulífeyrisþegar með 75% örorkumat í gildi hjá TR fengu engar örorkulífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóði/lífeyrissjóðum á sama tímabili og hversu hátt hlutfall örorkulífeyrisþega er það? Svar óskast sundurliðað eftir kyni og aldri við fyrsta mat hjá TR.
Skriflegt svar óskast.