Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 718  —  235. mál.




Svar


félags- og jafnréttismálaráðherra við fyrirspurn frá Halldóru Mogensen um nefndir og ráð um málefni fatlaðs fólks.


     1.      Hvaða nefndir og ráð sem fjalla um málefni fatlaðs fólks starfa undir stjórn ráðherra, á ábyrgð hans eða undirstofnana hans?
    Skipan nefnda og ráða á vegum félags- og jafnréttismálaráðherra er með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða svokallaðar verkefnanefndir og hins vegar lögbundnar nefndir.
    Verkefnanefndir sem nú starfa eru:
     a.      Starfshópur um eftirfylgni með framkvæmd stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021.
     b.      Verkefnisstjórn um mótun innleiðingaráætlunar um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumótun og ákvörðunartöku ráðuneyta og stofnana ríkisins.
     c.      Stýrihópur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess.
     d.      Starfshópur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar til framfærslu skv. V. og VI. kafla í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
     e.      Starfshópur um umönnunargreiðslur og greiðslur til foreldra langveikra og/eða fatlaðra barna.
    Lögbundnar nefndir sem nú starfa eru:
     a.      Nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar skv. 15. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
     b.      Réttindavakt fyrir fatlað fólk.
     c.      Sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk skv. 14. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
     d.      Samráðsnefnd um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

     2.      Fyrir setu í hvaða nefndum og ráðum, sbr. 1. tölul., er greidd þóknun?
    Greidd er þóknun fyrir starf einstaklinga í tveimur lögbundnum nefndum. Um er að ræða nefndir þar sem einstaklingar eru kallaðir til starfa til að sinna sérhæfðum verkefnum á grundvelli menntunar og þekkingar. Nefndirnar eru:
     a.      Nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar skv. 15. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
     b.      Sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk skv. 14. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk

     3.      Í hversu mörgum nefndum og ráðum sem nefnd eru í 1. tölul. sitja fatlaðir einstaklingar, í ljósi þess að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks leggur skyldu á ríkið að viðhafa samráð við fatlað fólk þegar málefni þess eru til umfjöllunar?
    Rétt er að taka fram að við skipan í verkefnanefndir og lögbundnar nefndir á vegum félags- og jafnréttismálaráðherra sem varða málefni fatlaðs fólks er yfirleitt óskað eftir tilnefningum frá Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp. Allur gangur er á því hvort þessi samtök tilnefni bara fatlað fólk eða bæði fatlað og ófatlað fólk þegar óskað er tilnefninga frá þeim.
    Jafnframt er rétt að það komi fram að ekki liggur alltaf fyrir hvort einstaklingur sem skipaður er í nefnd sé með fötlun eða ekki. Af þeim sökum getur ráðuneytið ekki staðfest að meðfylgjandi tölur séu að fullu réttar.
    Samkvæmt því sem ráðuneytið kemst næst er einn fatlaður einstaklingur í verkefnanefnd og tveir í lögbundnum nefndum, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
    Ráðuneytið telur þó rétt að upplýsa að í óformlegu samráði við reglugerðarsmíð við frumvarpsdrög um lög um þjónustu við fólk með miklar stuðningsþarfir óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir því við hagsmunasamtök fatlaðs fólks að fulltrúar þeirra væru fatlað fólk.
    Í fimm samráðshópum sem taka þátt í reglugerðarsmíð við fyrrnefnt frumvarp eru sex einstaklingar sem falla undir lög um málefni fatlaðs fólks.

     4.      Sitja einhverjir fatlaðir einstaklingar í nefndum og ráðum sem ekki er greidd þóknun fyrir? Ef svo er, telur ráðherra ástæðu til að breyta því, með vísan til þeirrar óbeinu vinnuskyldu sem felst í slíkri nefndarsetu?
    Greidd er þóknun fyrir starf einstaklinga í tveimur lögbundnum nefndum. Um er að ræða nefndir þar sem einstaklingar eru kallaðir til starfa til að sinna sérhæfðum verkefnum á grundvelli menntunar og þekkingar. Nefndirnar eru:
     a.      Sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlaðs fólk skv. 14. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
     b.      Nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar skv. 15. gr. laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
    Almenna reglan um greiðslu þóknana í ráðuneytinu er að ekki er greitt sérstaklega fyrir störf nefndarmanna í nefndum og ráðum ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir því að flestir sem sinni nefndarstörfum séu þar á vegum hinna ýmsu hagsmunaaðila.