Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 812  —  434. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Gunnari Braga Sveinssyni um framkvæmdir á Reykjanesbraut.


     1.      Hver eru áætluð framlög til framkvæmda við Reykjanesbraut hvert ár árin 2018–2021?
    Fjárveitingar eru á árinu 2018 til eftirtalinna aðgerða sem taldar eru bæta umferðaröryggi og greiða fyrir umferð:
    Gert er ráð fyrir lagfæringum á gatnamótunum á mótum Fjarðarhrauns og Lækjargötu í Hafnarfirði. Fjárveiting er samtals 120 millj. kr.
    Gert er ráð fyrir breytingu á vegamótunum við Hafnaveg í Reykjanesbæ. Núverandi vegamótum verður lokað og Hafnavegur tengdur við nýlegt hringtorg við Fitjar. Fjárveiting er 180 millj. kr.
    Fjárveitingar til einstakra verkefna á árunum 2019–2021 munu koma fram í samgönguáætlun fyrir árin 2019–2024.

     2.      Hvernig er áætluð skipting framkvæmda í tímaröð eftir vegköflum?
    Framkvæmdum við breikkun Reykjanesbrautar má skipta í eftirfarandi kafla eða verkhluta:
     a.      Breikkun í Hafnarfirði frá Molduhrauni (Álftanesvegi) að Kaldárselsvegi. Gert hefur verið ráð fyrir að vegurinn verði lækkaður á þessum kafla og að vegamót við Álftanesveg, Fjarðarhraun og Lækjargötu verði mislæg. Áætlaður kostnaður er um 5.000 millj. kr. Vegagerðin og Hafnarfjarðarbær eru að hefja endurskoðun á hönnun þessa kafla og áætla að ljúka henni að ári.
     b.      Breikkun í Hafnarfirði frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi. Áætlaður kostnaður er um 2.300 millj. kr. Hönnun liggur fyrir.
     c.      Breikkun í Hafnarfirði frá Krýsuvíkurvegi að enda tvöfalda kaflans í Hvassahrauni. Áætlaður kostnaður er um 3.000 millj. kr. Aðalskipulag Hafnarfjarðar gerir ráð fyrir flutningi vegarins en ekki liggja fyrir endanlegir samningar við bæinn um kostnaðarskiptingu verksins.
     d.      Breikkun í Reykjanesbæ frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þessi kafli gæti verið breikkaður án mislægra gatnamóta til að byrja með og er kostnaður áætlaður um 2.000–3.000 millj. kr.
    Framkvæmdatími framangreindra verkefna ræðst af fjárveitingum. Undirbúningur að gerð samgönguáætlunar fyrir árin 2019–2031 er hafinn í ráðuneyti samgöngumála.

     3.      Hvenær má búast við að tvöföldun Reykjanesbrautar ljúki?
    Óvissa gildir um þetta atriði á meðan ekki hefur verið gengið frá fjárveitingum. Sjá jafnframt c-lið í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.

     4.      Hvernig verður fjármögnun vegna framkvæmda við Reykjanesbraut háttað?
    Fjármögnun byggist á fjárveitingum Alþingis.