Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 820  —  543. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lækkun tekjuskatts.

Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.


     1.      Hver þyrfti hækkun persónuafsláttar að verða til að launþegar yrðu jafnsettir því að tekjuskattshlutfall fyrir neðra skattþrep yrði lækkað um eitt prósentustig og hver yrði persónuafslátturinn í krónum talið við þá breytingu?
     2.      Hver yrði kostnaður ríkissjóðs af því að hækka persónuafsláttinn þannig að skattleysismörk atvinnutekna yrðu 300.000 kr. á mánuði?
     3.      Við hvaða tekjumörk yrði persónuafslátturinn að fjara út til að fyrrgreind breyting kosti ríkið ekkert?


Skriflegt svar óskast.