Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 823 — 384. mál.
Viðbót.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um landvörslu.
1. Hversu margar voru landvarðavikur á árinu 2017 og hversu margar eru áætlaðar á árinu 2018?
Á árinu 2017 voru landvörsluvikur alls 2.167 en á árinu 2018 eru þær áætlaðar alls 2.169.
2. Hefur landvarsla haldist í hendur við aukinn fjölda ferðamanna undanfarin ár?
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Aukning í landvörslu hefur ekki haldist í hendur við mjög mikla aukningu ferðamanna undanfarin ár. Þrjár stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fara með landvörslu. Hjá Þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur landvarsla náð að haldast að mestu í hendur við aukinn ferðamannafjölda á undanförnum árum en ekki hjá Vatnajökulsþjóðgarði og Umhverfisstofnun. Í því samhengi er jafnframt rétt að nefna að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2019–2023 er gert ráð fyrir aukningu í landvörslu, þannig að umfang hennar geti betur haldist í hendur við aukinn fjölda ferðamanna eða sem nemur 2,2 milljörðum kr. yfir tímabilið.
3. Hversu miklu fjármagni var veitt til landvörslu árið 2017, skipt eftir friðlýstum svæðum og þjóðgörðum, og hversu mikið fé er áætlað til landvörslu fyrir árið 2018?
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á árinu 2017 voru veittar rúmar 473 millj. kr. til landvörslu en gert er ráð fyrir tæpum 494 millj. kr. á árinu 2018 sem er um 20 millj. kr. aukning á milli ára eða sem nemur 4,3%. Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu kostnaðar og vikna á milli friðlýstra svæða og þjóðgarða eftir árum.