Ferill 556. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 841 — 556. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um aðgengi fatlaðs fólks.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hvernig tryggir ráðherra fullnægjandi aðgengi fyrir fatlað fólk að manngerðu umhverfi í stofnunum á málefnasviði ráðherra, sem og að upplýsingum og gögnum?
2. Er í gildi stefna eða aðgerðaáætlun í stofnunum á málefnasviði ráðherra um aðgengi fatlaðs fólks?
Skriflegt svar óskast.