Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 847 — 26. mál.
Frumvarp til laga
um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
(Eftir 2. umræðu, 25. apríl.)
I. KAFLI
Markmið og skilgreiningar.
1. gr.
Markmið.
Þjónusta samkvæmt lögum þessum skal miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður viðkomandi, óskir og önnur atriði sem skipta máli, svo sem kyn, kynferði, aldur, þjóðernisuppruna, trúarbrögð o.fl.
Við framkvæmd laga þessara skal framfylgt þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá skulu stjórnvöld tryggja að fatlað fólk, þ.m.t. hagsmunasamtök þess, hafi áhrif á stefnumörkun og ákvarðanir er varða málefni þess. Skal ákvarðanataka byggjast á viðeigandi aðlögun þar sem aðgerða er þörf svo að fatlað fólk fái notið réttinda sinna. Þegar fötluð börn og fjölskyldur þeirra eiga í hlut skal einnig framfylgja barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna lögum samkvæmt.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. Fötlun: Afleiðing skerðinga og hindrana af ýmsum toga sem verða til í samspili fólks með skerðingar og umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Skerðingar hlutaðeigandi einstaklings eru langvarandi og hindranirnar til þess fallnar að viðkomandi verði mismunað vegna líkamlegrar, geðrænnar eða vitsmunalegrar skerðingar eða skertrar skynjunar.
2. Fatlað fólk: Fólk með langvarandi líkamlega, geðræna eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun sem verður fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra ef aðstoðar nýtur ekki við.
3. Stuðningsþarfir: Þarfir einstaklings fyrir þjónustu eða aðstoð í daglegu lífi vegna fötlunar. Stuðningsþarfir eru einstaklingsbundnar en geta einnig tekið mið af þörfum fjölskyldu einstaklingsins. Við mat á stuðningsþörfum er stuðst við samræmdar aðferðir.
4. Stoðþjónusta: Margháttuð aðstoð við athafnir daglegs lífs, veitt á grundvelli laga þessara, sem byggist m.a. á einstaklingsbundnum þörfum fólks með hliðsjón af óskum þess.
5. Notendasamningar: Samningur við sveitarfélag sem felur í sér að notandi stjórnar þeirri aðstoð sem hann fær þannig að hann skipuleggur hana, ákveður hvenær og hvar hún er veitt og velur aðstoðarfólk. Notendasamningar geta verið í formi beingreiðslusamnings, þar sem notandi sér alfarið um starfsmannahald sjálfur, notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar eða þjónustufyrirkomulags þar sem notandi stýrir sjálfur þjónustu við sig þó að þeir sem aðstoði hann séu starfsmenn sveitarfélags.
6. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Aðstoð sem stjórnað er af notanda þjónustunnar með þeim hætti að hann skipuleggur aðstoðina, ákveður hvenær og hvar hún er veitt, velur aðstoðarfólk og hver annast umsýslu á grundvelli starfsleyfis þar að lútandi.
7. Teymi fagfólks: Fagfólk sem hefur þekkingu á þörfum fatlaðs fólks og metur stuðnings- og þjónustuþörf þess með heildstæðum hætti og gagnreyndum matsaðferðum.
8. Einstaklingsbundin þjónustuáætlun: Áætlun um framkvæmd fjölþættrar þjónustu þar sem tiltekin eru markmið áætlunarinnar og leiðir, hverjir séu samstarfsaðilar og hverjir beri ábyrgð á að koma áætluninni í framkvæmd í samræmi við markmið laga þessara, reglugerða og reglna settra samkvæmt þeim sem og almennra laga á sviði félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og menntunar.
9. Þjónustu- og rekstraraðili: Sá sem ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu við fatlað fólk á grundvelli starfsleyfis ráðuneytisins og samnings við sveitarfélag eða þjónustusvæði.
10. Þjónustusvæði: Þegar fleiri en eitt sveitarfélag eiga samvinnu um að veita þjónustu við íbúa sína.
11. Húsnæðisúrræði: Íbúðarhúsnæði sem gert hefur verið aðgengilegt fyrir tiltekna notkun eða skilgreint sérstaklega fyrir tiltekinn hóp fatlaðs fólks.
12. Viðeigandi aðlögun: Nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og mannfrelsi.
13. Starfsleyfi: Leyfi til handa þjónustu- og rekstraraðila sem hyggst veita þjónustu samkvæmt lögum þessum. Þegar þjónusta er veitt á grundvelli NPA-samnings nefnist starfsleyfi umsýsluleyfi og þjónustu- og rekstraraðilinn umsýsluaðili.
3. gr.
Réttur til þjónustu.
Opinberum aðilum ber að tryggja að sú þjónusta sem veitt er skv. 1. mgr. sé samfelld og samþætt í þágu einstakra notenda. Einstaklingur sem hefur notið þjónustu samkvæmt lögum þessum á rétt á að njóta hennar áfram nema verulegar breytingar verði á stuðningsþörfum hans.
Reynist þörf fatlaðs einstaklings fyrir þjónustu eða þörf fyrir stuðning meiri eða sérhæfðari en svo að henni verði fullnægt innan almennrar þjónustu skal veita viðbótarþjónustu samkvæmt lögum þessum. Þjónusta samkvæmt lögum þessum kemur til viðbótar þeirri þjónustu sem veitt er á grundvelli annarra laga en ekki í stað hennar. Að jafnaði skal einstaklingur nýta sér almenna þjónustu, allt að 15 klukkustundum á viku, sbr. 26. og 27. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Fatlaður einstaklingur á rétt á þjónustu þar sem hann kýs að búa og á lögheimili. Einstaklingur sem nýtur þjónustu samkvæmt lögum þessum og hyggst flytja milli sveitarfélaga getur sótt um þjónustu í því sveitarfélagi sem hann ætlar að flytja til þó að hann hafi eigi skráð þar lögheimili sitt. Skal sveitarfélag þá taka umsókn til meðferðar og tryggja, í samvinnu við umsækjanda og eftir atvikum sveitarfélag sem flutt er frá, samfellu í þjónustunni við flutningana.
Sveitarfélag þar sem fatlaður einstaklingur á lögheimili tekur ákvarðanir um þjónustu við hann samkvæmt lögum þessum nema annað sé tekið fram eða leiði af öðrum lögum.
Sveitarfélag sem hefur samvinnu við önnur sveitarfélög um myndun þjónustusvæðis getur falið öðru sveitarfélagi eða sérstökum lögaðila að taka ákvarðanir um þjónustu við fatlaðan einstakling fyrir sína hönd.
II. KAFLI
Stjórn og skipulag.
4. gr.
Yfirstjórn og eftirlit ráðherra.
Ráðherra hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara, þar á meðal að þjónusta, starfsemi og rekstur sveitarfélaga og annarra aðila samkvæmt lögunum sé í samræmi við markmið þeirra, reglugerðir og reglur settar samkvæmt þeim og skuldbindingar á sviði mannréttindamála. Þá hefur ráðherra eftirlit með að réttindi fatlaðs fólks séu tryggð. Ráðherra getur ákveðið að eigin frumkvæði að taka til umfjöllunar stjórnsýslu sveitarfélags samkvæmt lögum þessum. Réttur aðila máls til að kæra ákvörðun hefur ekki áhrif á þessa heimild. Telji ráðuneytið rétt að gera athugasemd getur það:
1. gefið út leiðbeiningar um túlkun laga þessara og stjórnsýslu sveitarfélagsins á þessu sviði,
2. gefið út álit um lögmæti athafna eða athafnaleysis sveitarfélagsins eða annars er eftirlit beinist að,
3. gert sveitarfélagi að koma með tillögur til úrbóta og/eða gert tillögur til sveitarfélags um úrbætur á þjónustu þar sem þess er þörf og stuðlað að samræmingu hennar.
Markmið eftirlitsins er jafnframt að safna og miðla upplýsingum til að tryggja sambærilega þjónustu við fatlaða einstaklinga í ljósi ólíkra þarfa. Enn fremur skal ráðherra hafa umsjón með gerð þjónustu- og gæðaviðmiða í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
Ráðherra skal setja í reglugerð nánari reglur um eftirlit og eftirfylgni skv. 2. og 3. mgr. í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks, þar á meðal um framkvæmd eftirlitsins og upplýsingaskyldu sveitarfélaga.
5. gr.
Ábyrgð og samvinna sveitarfélaga.
Um samvinnu sveitarfélaga vegna verkefna samkvæmt lögum þessum fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í stað staðfestingar ráðuneytis sveitarstjórnarmála á samningi skal fá staðfestingu ráðuneytis sem fer með málefni fatlaðs fólks, sem skal kynnt hinu fyrrnefnda.
6. gr.
Samningar við einkaaðila.
7. gr.
Starfsleyfi.
Leyfisveitandi skal afturkalla starfsleyfi sem veitt hefur verið skv. 1. mgr. ef rekstraraðilinn hefur ekki sinnt kröfum um úrbætur innan tiltekinna tímamarka eða rekstrinum er verulega ábótavant að mati leyfisveitanda. Þá getur leyfisveitandi afturkallað starfsleyfi ef ábyrgðaraðili þjónustu vanrækir skyldur sínar gagnvart notendum þjónustunnar eða starfsmönnum.
Ráðherra skal setja í reglugerð nánari reglur um skilyrði fyrir starfsleyfi skv. 1. mgr. í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og að fenginni umsögn hagsmunasamtaka fatlaðs fólks og heildarsamtaka launafólks, m.a. um almenn eða frekari skilyrði fyrir veitingu leyfa, form leyfisveitinga, útgáfu og endurskoðun leyfa o.fl.
III. KAFLI
Þjónusta.
8. gr.
Stoðþjónusta.
1. Þarfir fatlaðra einstaklinga fyrir þjónustu sem felst í því að treysta möguleika þeirra til sjálfstæðs heimilishalds og samfélagslegrar þátttöku.
2. Þarfir fatlaðra einstaklinga til hæfingar, endurhæfingar, menntunar og atvinnu, m.a. á grundvelli viðeigandi aðlögunar, svo að þeir geti séð sér farborða og tekið virkan þátt í samfélaginu til jafns við aðra.
3. Þarfir fatlaðra einstaklinga fyrir sérhæfða ráðgjöf, félagslegan stuðning og félagslegt samneyti, þ.m.t. ástundun tómstunda og menningarlífs.
4. Þarfir fatlaðra barna fyrir umönnun og þjálfun ásamt nauðsynlegri þjónustu við fjölskyldur þeirra svo að þær geti búið börnunum örugg og þroskavænleg uppeldisskilyrði.
5. Þarfir fatlaðra foreldra vegna umönnunar og uppeldis barna sinna.
Sveitarfélag eða sveitarfélög sem starfa saman á þjónustusvæði skulu reka þjónustustofnanir til að veita þjónustu samkvæmt lögum þessum ef ekki er mögulegt að veita þjónustuna í almennum úrræðum með viðeigandi aðlögun. Þeim er heimilt að bæta við þjónustustofnunum, sameina þær eða leggja niður starfsemi þeirra. Sé það mat sveitarfélags að ekki sé þörf fyrir þjónustustofnun eða sérúrræði er heimilt að leggja starfsemina niður að fenginni umsögn ráðherra. Sveitarfélag skal afla umsagnar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks og eftir atvikum notendaráðs í viðkomandi sveitarfélagi áður en ákvörðun er kynnt ráðherra sem skal innan fjögurra vikna meta hvort hann leggist gegn lokun.
Félagasamtök, sjálfseignarstofnun eða annar einkaaðili sem vill hefja eða taka við þjónustuþætti samkvæmt þessari grein skal áður afla starfsleyfis skv. 7. gr.
9. gr.
Búseta.
Fatlað fólk á rétt á því að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra. Óheimilt er að binda þjónustu við fatlað fólk því skilyrði að það búi í tilteknu búsetuformi.
Ráðherra setur reglugerð um sérstök húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, m.a. um fjölda samliggjandi íbúða, einkarými, viðbótarrými vegna fötlunar og sameiginleg rými.
10. gr.
Notendasamningar.
Markmið notendasamninga er að auka val einstaklinga um þjónustuform og fyrirkomulag stuðnings eða aðstoðar, að undangengnu faglegu mati.
Einstaklingar eða barnafjölskyldur sem metnar hafa verið í þörf fyrir aðstoð eða stoðþjónustu geta sótt um að gera notendasamning þar sem fjallað er um framkvæmd stoðþjónustunnar. Heimilt er að samþætta þjónustu sem einstaklingur á rétt á samkvæmt öðrum lögum í slíkum samningi. Hlutaðeigandi sveitarfélag gerir slíka samninga við notendur á grundvelli reglna sem það setur. Við gerð notendasamninga skulu uppfyllt skilyrði laga og reglugerða um réttindi starfsmanna, m.a. hvað varðar aðbúnað þeirra á vinnustað, sbr. lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, og aðrar meginreglur íslensks vinnuréttar og kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Sveitarfélag getur rift notendasamningi verði misbrestur þar á.
11. gr.
Notendastýrð persónuleg aðstoð.
Aðstoðin skal vera skipulögð á forsendum notandans og undir verkstýringu og verkstjórn hans. Ef notandinn á erfitt með að annast verkstjórn vegna fötlunar sinnar skal hann eiga rétt á aðstoð við hana, sbr. þó ákvæði 6. gr. Aðstoðin skal um leið vera heildstæð þar sem þjónustukerfi félags-, heilbrigðis- og menntamála samhæfa aðstoð sína í þágu þess sem nýtur hennar.
Umsýsluaðili NPA-samnings ber vinnuveitendaábyrgð gagnvart starfsfólki sínu og skal sjá til þess að uppfyllt séu ákvæði laga og reglugerða um réttindi starfsmanna sem aðstoða hann, m.a. hvað varðar aðbúnað á vinnustað þeirra, sbr. lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, og aðrar meginreglur íslensks vinnuréttar og kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Sveitarfélag getur afturkallað ákvörðun um umsýslusamning verði misbrestur þar á og hafi ekki verið bætt úr þrátt fyrir ábendingar þar að lútandi.
Ráðherra gefur út reglugerð og handbók um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar, m.a. um hlutverk og ábyrgð, skipulag og útfærslu, þ.m.t. viðmið um umfang þjónustu og lágmarksstuðningsþarfir, eftirlit og kostnaðarhlutdeild aðila í samráði við sveitarfélög og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
Sveitarfélög bera ábyrgð á framkvæmd aðstoðarinnar og skulu setja nánari reglur þar um í samráði við notendaráð fatlaðs fólks eða samtök fatlaðs fólks.
12. gr.
Einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir og þjónustuteymi.
Skulu viðkomandi aðilar mynda þverfaglegt þjónustuteymi undir forystu félagsþjónustunnar sem hefur það hlutverk að útfæra þjónustu við viðkomandi, hafa samráð um þjónustuna og tryggja samfellu og gæði hennar.
IV. KAFLI
Þjónusta við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
13. gr.
Almennt.
Fjölskyldur fatlaðra barna skulu fá nægilega þjónustu til þess að fötluð börn þeirra geti notið réttinda sinna til fulls og jafns við aðra.
14. gr.
Snemmtæk íhlutun og greining.
15. gr.
Stuðningsfjölskyldur.
Ráðherra skal gefa út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélögin um framkvæmd þjónustunnar á grundvelli ákvæðis þessa. Sveitarstjórnum er jafnframt heimilt að setja reglur um þjónustuna á grundvelli ákvæðisins og leiðbeinandi reglna ráðherra.
16. gr.
Frístundaþjónusta.
Ráðherra gefur út leiðbeiningar um framkvæmd þjónustu samkvæmt þessari grein að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Sveitarstjórn skal setja nánari reglur um þjónustuna á grundvelli leiðbeininga ráðherra.
17. gr.
Skammtímadvöl.
Ráðherra setur reglugerð um starfsemi og aðbúnað á skammtímadvalarstöðum í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
18. gr.
Sumardvöl.
19. gr.
Þjónustuteymi og einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir.
Þegar barn þarf sérhæfða og mikla þjónustu margra þjónustukerfa, svo sem félagsþjónustu, barnaverndar, heilbrigðisþjónustu og sérfræðiþjónustu skóla, hvort sem er vegna fötlunar, raskana eða langvinnra sjúkdóma, skulu viðkomandi aðilar mynda þverfaglegt þjónustuteymi undir forystu félagsþjónustunnar eða skóla sem hefur það hlutverk að útfæra þjónustu við barnið, hafa samráð um þjónustuna og tryggja samfellu og gæði hennar.
20. gr.
Ráðgjöf vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir.
Teymi skv. 1. mgr. er heimilt að afla og vinna með nauðsynlegar upplýsingar um heilsu og stöðu barns, þ.m.t. niðurstöður greininga og mat á þörfum þess, sem og upplýsingar um aðstæður fjölskyldu þess. Tilgangur vinnslunnar er að teymið geti lagt heildstætt mat á stöðu og þjónustuþarfir barns, sinnt ráðgjafarhlutverki sínu gagnvart sveitarfélögum og tekið ákvörðun um hvaða úrræða barnið þarfnist, sbr. 3. málsl. 1. mgr.
21. gr.
Búseta barna utan heimilis.
Heimilt er að útbúa sérstakt húsnæði fyrir fötluð börn með miklar þroska- og geðraskanir, enda hafi að mati sérfræðingateymis skv. 20. gr. verið fullreynt að styðja barn á heimili fjölskyldu þess eða á öðru heimili í nærsamfélagi þess. Um nauðung sem beitt er í slíkum úrræðum gilda ákvæði laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
Ráðherra skal, í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks, setja reglugerð um vistun barna utan heimilis samkvæmt þessari grein.
V. KAFLI
Atvinnumál.
22. gr.
Almennt.
Kostnaður vegna þjónustu Vinnumálastofnunar og vinnumarkaðsúrræða á vegum hennar greiðist úr ríkissjóði, þar á meðal sérstakur stuðningur við atvinnuleitendur og eftirfylgni, svo sem kostnaður vegna vinnusamninga öryrkja, en kostnaður vegna vinnustaða fyrir verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun greiðist af sveitarfélögum, þar á meðal stoðþjónusta skv. 8. gr.
Fatlað fólk skal eiga forgang að störfum hjá ríki og sveitarfélögum ef hæfni þess til starfsins er meiri eða jöfn hæfni annarra sem um starfið sækja.
23. gr.
Samþætting þjónustu.
Til þess að tryggja samfellu á milli vinnumarkaðsaðgerða Vinnumálastofnunar og þjónustu sveitarfélaga samkvæmt lögum þessum skulu ráðgjafar sveitarfélaga eða þjónustusvæða, sem þau mynda, leita eftir samstarfi og samráði á grundvelli samstarfssamninga við Vinnumálastofnun um atvinnumál fatlaðs fólks, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir.
24. gr.
Vernduð vinna, hæfing og dagþjónusta.
Sveitarfélög skulu starfrækja vinnustaði fyrir verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk þar sem því stendur til boða þroska-, iðju- og starfsþjálfun.
Starfsþjálfun skal einnig standa til boða á vinnumarkaði með viðeigandi stuðningi samkvæmt lögum um vinnumarkaðsaðgerðir.
25. gr.
Styrkir.
1. Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
2. Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.
Ráðherra skal gefa út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd styrkveitinganna á grundvelli ákvæðis þessa, svo sem skilyrði sem uppfylla þarf til að njóta aðstoðarinnar og viðmiðunarreglur um fjárhæð styrkja. Sveitarstjórnum er jafnframt heimilt að setja sér nánari reglur um styrkina á grundvelli ákvæðisins og leiðbeinandi reglna ráðherra. Kostnaður vegna styrkja skv. 1. mgr. greiðist af sveitarfélögum.
VI. KAFLI
Stjórnendur og starfsfólk.
26. gr.
Hæfi starfsmanna.
Óheimilt er að ráða í störf sem unnin eru í þágu þjónustu við fatlað fólk hjá sveitarfélögum, byggðasamlögum, ríki eða einkaaðilum, hvar sem hún er veitt, þá sem hafa hlotið refsidóma vegna brota á ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga. Hafi umsækjandi verið dæmdur til refsingar fyrir brot á öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga skal meta áhrif þess á hæfi viðkomandi til að gegna því starfi sem um ræðir, m.a. að teknu tilliti til eðlis starfsins og alvarleika brotsins. Sama gildir um verktaka og undirverktaka sem ráðnir eru til að sinna verkefnum samkvæmt lögum þessum hjá sveitarfélögum, byggðasamlögum, ríki eða einkaaðilum sem veita fötluðu fólki þjónustu.
Stjórnendur hjá sveitarfélögum, byggðasamlögum, ríki og einkaaðilum sem fara með þjónustu samkvæmt lögum þessum eiga rétt á upplýsingum úr sakaskrá um það hvort tiltekinn umsækjandi um starf á þeirra vegum hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. og XXIII. kafla almennra hegningarlaga eða annarra ákvæða sömu laga að fengnu samþykki hans.
27. gr.
Skyldur starfsmanna.
28. gr.
Þagnarskylda.
29. gr.
Meðferð persónuupplýsinga.
VII. KAFLI
Málsmeðferð.
30. gr.
Almennar reglur um málsmeðferð.
Þegar ákvörðun um þjónustu er tekin skal hún byggð á heildarsýn og einstaklingsbundnu mati á þörfum þess sem um hana sækir og skal ákvörðun tekin í samráði við umsækjanda. Sveitarfélög skulu tryggja að verklag og leiðbeiningar til starfsfólks miði að því að tryggja jafnræði í þjónustunni og að þjónustan sem veitt er sé nægjanleg miðað við þarfir umsækjanda. Þá skal hún veitt á því formi sem hann óskar, sé þess kostur.
31. gr.
Umsókn um þjónustu.
Um meðferð umsókna skal fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga sé ekki kveðið á um vandaðri málsmeðferð í lögum þessum.
Sveitarfélög skulu starfrækja teymi fagfólks sem metur heildstætt þörf fatlaðs einstaklings fyrir þjónustu og hvernig veita megi þjónustu í samræmi við óskir hans. Teymið skal hafa samráð við einstaklinginn við matið og skal það byggjast á viðurkenndum og samræmdum matsaðferðum. Þegar við á skal teymið einnig greina hvort fötlun sé til komin vegna aldurstengdra ástæðna, eftir atvikum í samvinnu við færni- og heilsumatsnefndir.
Fötluð börn eiga rétt á að láta í ljós skoðanir sínar á þjónustu þeim til handa.
32. gr.
Frumkvæðisskylda.
33. gr.
Rannsóknarskylda.
34. gr.
Ákvörðun um þjónustu.
Ráðherra setur reglugerð um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
Ef umsókn um þjónustu er hafnað eða hún aðeins samþykkt að hluta skal ákvörðun rökstudd skriflega. Skal þá gerð grein fyrir á hvaða gögnum, sjónarmiðum, lagarökum og reglum ákvörðun byggist. Einnig skal leiðbeint um leiðir til þess að fá ákvörðun endurskoðaða.
35. gr.
Kæruheimild.
Umsækjandi, hlutaðeigandi sveitarfélag eða Samband íslenskra sveitarfélaga geta borið niðurstöðu úrskurðarnefndar undir dómstóla eftir almennum reglum. Að öðru leyti fer um málsmeðferð nefndarinnar samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála.
VIII. KAFLI
Samráð og stefnumörkun.
36. gr.
Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks.
Hlutverk samráðsnefndarinnar er að vera ráðgefandi fyrir ráðherra við stefnumörkun í málefnum fatlaðs fólks.
37. gr.
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.
IX. KAFLI
Fjármögnun.
38. gr.
Fjármögnun.
Sveitarfélög skulu árlega gera fjárhagsáætlanir um útgjöld til málefna fatlaðs fólks í samræmi við þá þjónustu sem þeim ber að veita á grundvelli þessara laga.
Ráðuneytinu er heimilt að óska eftir því að sveitarfélög sendi ráðuneytinu fjárhagsáætlanir sínar skv. 2. mgr.
39. gr.
Tekjur.
X. KAFLI
Gildistaka og reglugerðarheimildir.
40. gr.
Reglugerðarheimildir.
1. eftirlit og eftirfylgni með sveitarfélögum, sbr. 4. gr.,
2. skilyrði fyrir starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra þjónustu- og rekstraraðila sem ætla að veita þjónustu samkvæmt lögum þessum, sbr. 7. gr.,
3. sérstök húsnæðisúrræði, sbr. 9. gr.,
4. notendastýrða persónulega aðstoð, sbr. 11. gr.,
5. starfsemi og aðbúnað á skammtímadvalarstöðum, sbr. 17. gr.,
6. vistun barna utan heimilis, sbr. 21. gr.,
7. biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma, sbr. 34. gr.
Þá skal ráðherra gefa út:
1. handbók um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar, m.a. um hlutverk og ábyrgð, skipulag og útfærslu, eftirlit og kostnaðarhlutdeild aðila, sbr. 11. gr.,
2. leiðbeinandi reglur um framkvæmd þjónustu stuðningsfjölskyldna, sbr. 15. gr.,
3. leiðbeiningar um framkvæmd sértækrar frístundaþjónustu, sbr. 16. gr.,
4. leiðbeinandi reglur um framkvæmd styrkveitinga vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar, til verkfæra- og tækjakaupa og greiðslu námskostnaðar, sbr. 25. gr.
41. gr.
Gildistaka.
42. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
a. Við 2. málsl. 1. mgr. bætist: og umsögn sérfræðings félagsþjónustu þess sveitarfélags sem veitir viðkomandi þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, þar á meðal um rafrænar umsóknir, svo sem hvernig standa skuli að undirskrift rafrænnar umsóknar og skilum á öðrum gögnum sem fylgja skulu rafrænni umsókn sem og nánar um fyrirkomulag þess hvernig umsækjendur skulu hafa reglulegt samband við stofnunina.
2. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
a. E-liður 1. mgr. orðast svo: starfsendurhæfing, og.
b. F-liður 1. mgr. orðast svo: starfsendurhæfing einstakra hópa, sbr. 3. mgr.
c. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Vinnumálastofnun er jafnframt heimilt að gera samstarfssamninga um þátttöku fatlaðra atvinnuleitenda í úrræðum á vegum sveitarfélaga eða þjónustusvæða sem þau mynda, samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
d. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Vinnumálastofnun skal annast skipulag vinnumarkaðsúrræða fyrir fatlað fólk, þar á meðal sérstakan stuðning við atvinnuleitendur og eftirfylgni, svo sem vinnusamninga öryrkja skv. 4. mgr.
3. Við 2. mgr. 15. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar á meðal skulu ráðgjafar Vinnumálastofnunar leita eftir samstarfi og samráði um atvinnumál fatlaðs fólks, á grundvelli samstarfssamninga við sveitarfélög eða þjónustusvæði þeirra, samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, svo sem um skipulag og framkvæmd vinnumarkaðsúrræða.
4. Við 17. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Enn fremur skal Vinnumálastofnun, í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og aðila vinnumarkaðarins, sjá til þess að gerð sé regluleg könnun á stöðu fatlaðs fólks á vinnumarkaði.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Á innleiðingartímabilinu veitir ríkissjóður framlag til eftirfarandi fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem skal ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekinni hlutdeild af fjárhæð samninga, á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum:
Á árinu 2018 vegna allt að 80 samninga.
Á árinu 2019 vegna allt að 103 samninga.
Á árinu 2020 vegna allt að 125 samninga.
Á árinu 2021 vegna allt að 150 samninga.
Á árinu 2022 vegna allt að 172 samninga.
Ákvæði þetta og fyrirkomulag notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar auk þeirra álitaefna sem upp koma við framkvæmd laga þessara á tímabilinu skal endurskoða innan þriggja ára frá gildistöku þeirra í ljósi fenginnar reynslu.
Þeir samningar sem þegar hafa verið gerðir við gildistöku laga þessara halda gildi sínu.
II.