Ferill 560. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 883  —  560. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sektareglugerð vegna umferðarlagabrota.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


    Hverjar eru helstu breytingar á fyrri gildandi rétti með nýrri reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim nr. 288/2018 sem tekur gildi 1. maí 2018? Hvaða rök liggja að baki því að þessi nýja reglugerð var sett? Hvernig er eftirfylgni reglugerðarinnar og úrvinnsla sektanna fyrirhuguð?