Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 969  —  604. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um hvalveiðar og ferðaþjónustu.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.


     1.      Tekur ráðherra ferðamála undir það sjónarmið Samtaka ferðaþjónustunnar og fleiri aðila að með hvalveiðum sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni?
     2.      Telur ráðherra ástæðu til að gera úttekt og samanburð á hagsmunum Íslands, annars vegar af hvalveiðum í viðskiptaskyni og hins vegar þjónustu tengdri ferðaþjónustu eins og hvalaskoðun?
     3.      Styður ráðherra ferðamála að hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin?


Skriflegt svar óskast.