Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1044  —  573. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um gæsluvarðhald og gæsluvarðhaldsúrskurði.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu oft, frá 27. mars 2013 og fram á þennan dag, hefur verið óskað eftir framlengingu gæsluvarðhalds þegar minna en 24 klukkustundir eru eftir af gildandi úrskurði eða eftir að tími fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðar er liðinn?
     2.      Hversu oft, frá 27. mars 2013 og fram á þennan dag, hefur úrskurður um framlengingu gæsluvarðhalds verið kveðinn upp eftir að tími fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðar er liðinn?
     3.      Hversu langur tími leið frá lokum gæsluvarðhalds og þar til kveðinn var upp úrskurður um framlengingu gæsluvarðhalds í framangreindum tilfellum?
     4.      Í hverjum framangreindra tilfella var kærði látinn laus eftir að tími fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðar var liðinn? Í hverjum tilfellanna var kærði vistaður í fangageymslu á lögreglustöð? Í hverjum tilfellanna var öðrum úrræðum beitt og hver voru þau úrræði?


    Í því skyni að afla framangreindra upplýsinga hafði ráðuneytið samband við Fangelsismálastofnun, ríkissaksóknara og dómstólasýsluna. Engin þessara stofnana bjó yfir viðkomandi upplýsingum eða taldi sig geta aflað þeirra án þess að þurfa að leggjast í meiri háttar greiningu og upplýsingaöflun, enda væru umbeðnar upplýsingar hvergi skráðar með kerfisbundnum hætti. Til þess að afla þessara upplýsinga liggur því fyrir að fara þarf yfir hvern og einn gæsluvarðhaldsúrskurð sem kveðinn hefur verið upp á umræddu tímabili og greina umbeðin tímamörk hverju sinni.
    Með hliðsjón af þessu er ekki unnt að svara fyrirspurn þingmannsins.