Ferill 586. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1071 — 586. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.
Undir málefnasvið samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins falla tíu fastanefndir, sex ráð, tvær úrskurðarnefndir, fimm stjórnir og ein rannsóknarnefnd. Kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra má sjá í meðfylgjandi töflu.
| Heiti | Aðalmenn/ kk | Aðalmenn/ kvk | Samtals | Hlutfall/ kk | Hlutfall/ kvk |
| Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Nefnd um samskipti ríkis og sveitarfélaga | 3 | 1 | 4 | 80% | 20% |
| Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga | 3 | 4 | 7 | 43% | 57% |
| Reikningsskila- og upplýsinganefnd | 2 | 3 | 5 | 40% | 60% |
| Samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga um opinber fjármál | 5 | 5 | 10 | 50% | 50% |
| Mönnunarnefnd skipa | 4 | 1 | 5 | 80% | 20% |
| Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar | 6 | 0 | 6 | 100% | 0% |
| Skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna | 4 | 1 | 5 | 80% | 20% |
| Undanþágunefnd frá atvinnuréttindum vélstjóra og skipstjórnarmanna | 4 | 1 | 5 | 80% | 20% |
| Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál 1 | 6 | 5 | 11 | 55% | 45% |
| Rannsóknarnefnd samgönguslysa | 4 | 3 | 7 | 57% | 43% |
| Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála | 1 | 2 | 3 | 33% | 67% |
| Yfirfasteignamatsnefnd | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Stjórn Þjóðskrár Íslands | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Stjórn Byggðastofnunar | 5 | 2 | 7 | 71% | 29% |
| Stjórn Fjarskiptasjóðs | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Stjórn Byggðarannsóknarsjóðs | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Netöryggisráð | 5 | 6 | 11 | 45% | 55% |
| Samgönguráð | 2 | 1 | 3 | 67% | 33% |
| Flugvirktarráð | 5 | 5 | 10 | 50% | 50% |
| Fagráð um flugmál | 4 | 3 | 7 | 57% | 43% |
| Fagráð um umferðarmál | 13 | 11 | 24 | 54% | 46% |
| Siglingaráð | 9 | 2 | 11 | 82% | 18% |
| Samtals: | 97 | 62 | 159 | 61% | 39% |
1 Skipunartími runninn út og verður skipað á ný á næstu dögum.