Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1079  —  582. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.

    Eftirfarandi er listi yfir starfandi stjórnir, ráð og nefndir innan forsætisráðuneytisins ásamt upplýsingum um kynjaskiptingu skipaðra aðalmanna. Undanskildar eru ráðherranefndir og lögskipuð ráð þar sem allir nefndar- eða ráðsmenn taka sæti í krafti embættis síns. Um er að ræða ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, ráðherranefnd um ríkisfjármál, ráðherranefnd um jafnréttismál og ráðherranefnd um samræmingu mála er varða fleiri en eitt ráðuneyti og loks almannavarna- og öryggismálaráð.

Heiti stjórnar, ráðs eða nefndar Fjöldi karlkyns aðalmanna Hlutfall karlkyns aðalmanna Fjöldi kvenkyns aðalmanna Hlutfall kvenkyns aðalmanna
Málnefnd Stjórnarráðsins 3 38% 5 62%
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti aðstoðarseðlabankastjóra 2 67% 1 33%
Nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þeirra 6 55% 5 45%
Nefnd um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga 6 50% 6 50%
Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis 4 50% 4 50%
Orðunefnd 1 33% 2 67%
Óbyggðanefnd 2 67% 1 33%
Sérfræðingahópur um endurskoðun á ramma peningastefnu 2 67% 1 33%
Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur 1 17% 5 83%
Samráðsvettvangur ráðuneytanna um löggjafarmálefni 4 44% 5 56%
Samstarfsnefnd um málefni þjóðlendna 5 83% 1 17%
Sérfræðingahópur um stofnun stöðugleikasjóðs 2 67% 1 33%
Starfshópur um ákvörðun ESA varðandi ríkisaðstoð við orkufyrirtæki 3 75% 1 25%
Starfshópur um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu 3 60% 2 40%
Stefnuráð Stjórnarráðs Íslands 4 50% 4 50%
Stýrihópur um EES-samninginn 4 36% 7 64%
Stýrihópur um úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi 3 50% 3 50%
Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna 6 50% 6 50%
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál 2 67% 1 33%
Verkefnastjórn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna 1 12% 7 88%
Vísinda- og tækniráð 12 52% 11 48%
Ritstjórn samráðsgáttar 1 33% 2 67%
Þjóðaröryggisráð 5 50% 5 50%
Meðaltal 51% 49%