Ferill 546. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1080  —  546. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um aðgengi fatlaðs fólks.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig tryggir ráðherra fullnægjandi aðgengi fyrir fatlað fólk að manngerðu umhverfi í ráðuneytinu og stofnunum á málefnasviði ráðherra, sem og að upplýsingum og gögnum?
     2.      Er í gildi stefna eða aðgerðaáætlun í ráðuneytinu og stofnunum á málefnasviði ráðherra um aðgengi fatlaðs fólks?


Inngangur.
    Í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks og þingsályktun nr. 16/146, um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021, er stöðugt leitast við að tryggja aðgengi fatlaðs fólks að manngerðu umhverfi í forsætisráðuneytinu og stofnunum á málefnasviði þess. Aðstæður á hverjum stað hafa þó áhrif á þau úrræði sem tiltæk eru í hverju tilviki, svo sem friðlýsing húsa. Í samræmi við ályktun Alþingis nr. 70/145, um hvernig minnast skuli aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands, stendur nú yfir hönnunarsamkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg. Í hönnunarskilmálum samkeppninnar eru gerðar kröfur, í samræmi við lög, reglugerðir og ályktun Alþingis, um aðgengi fatlaðs fólks. Verðlaunatillaga samkeppninnar verður kynnt á 100 ára fullveldisafmæli Íslands 1. desember 2018, en ljóst er að með tilkomu nýrrar byggingar verða tiltekin þáttaskil í aðgengi fatlaðs fólks að húsakosti og manngerðu umhverfi forsætisráðuneytisins við Lækjartorg. Sama gildir um skipulagssamkeppni á svonefndum Stjórnarráðsreit og um fyrirhugaða uppbyggingu þar en verðlaunatillaga í skipulagssamkeppninni verður jafnframt kynnt 1. desember 2018.
    Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir aðgengi fatlaðs fólks að húsnæði og manngerðu umhverfi ráðuneytisins, stofnana sem undir það heyra og að húsnæði embættis forseta Íslands. Þá verður fjallað um aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum og gögnum og loks um stefnu og aðgerðaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.

Húsnæði ráðuneytisins og stofnana.
Húsnæði forsætisráðuneytisins.
1. Stjórnarráðshúsið.
    Stjórnarráðshúsið er einlyft og hlaðið steinhús með rishæð, reist á árunum 1761–1771. Húsið er alfriðað og er með hátt varðveislugildi. Aðkoma notenda hjólastóla að húsinu er frá bílastæði á baklóð um skábraut og er mögulegt að fara á jafnsléttu inn um bíslag á bakhlið hússins sem er í góðum tengslum við fundarherbergi ráðherra. Ef einstaklingur í hjólastól kemur inn um aðalinngang hússins eru settar færanlegar sliskjur fyrir hjólastóla á framtröppur.

2. Leiguhúsnæði forsætisráðuneytisins.
    Ráðuneytið leigir skrifstofurými undir starfsemi sína í fjórum húsum aftan við Stjórnarráðshúsið, þ.e. Hverfisgötu 4–6 og Hverfisgötu 4a og 6a. Framhúsin Hverfisgata 4 og Hverfisgata 6 voru reist annars vegar 1916 og hins vegar 1956. Bakhúsin Hverfisgata 4a og 6a, bæði þrjár hæðir, voru reist sem pakkhús 1919 og 1934.
    Aðkoma notenda hjólastóla frá götu er góð að Hverfisgötu 4 og 6 og er aðgengi að öllum hæðum húsanna með lyftu. Aðeins er aðkoma hjólastólanotenda að 1. hæð bakhúsa en þar er m.a. einn af fundarsölum ráðuneytisins.
    Eins og áður segir stendur nú yfir opin framkvæmdasamkeppni um 1.200 m² nýbyggingu við Stjórnarráðshúsið. Nýbyggingin mun leysa úr húsnæðismálum forsætisráðuneytisins og jafnframt leysa aðgengismál fatlaðra til frambúðar. Eins og að framan er getið er ráðuneytið dreift í mörgum byggingum sem flestar eru komnar til ára sinna og eru að stærstum hluta leiguhúsnæði og hefur svo verið um áratuga skeið.

3. Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu.
    Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu var reistur 1906 og er húsið friðað. Bústaðurinn er kjallari og tvær hæðir. Húsið er reist í brekku sem gerir aðkomu hreyfihamlaðra erfiða um aðaldyr. Skábraut liggur frá götu að bakhlið hússins þar sem möguleiki er á aðkomu fatlaðra með aðstoð.

4. Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum.
    Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum var reistur annars vegar árið 1930 (þrjár burstir) og hins vegar árið 1974 (tvær burstir) og er húsið friðað. Aðkoma hjólastóla er á jafnsléttu á 1. hæð að vestan.

Húsnæði forseta Íslands.
1. Bessastaðir.

    Á fyrstu mánuðum þessa árs óskuðu forseti Íslands og forsætisráðherra í samráði eftir úttekt á ferlimálum fatlaðra á gestamóttökusvæði Bessastaða og þá sérstaklega eftir leiðum til að bæta aðgengi hjólastóla og þeirra sem eiga erfitt um gang. Niðurstöður lágu fyrir í apríl og verður aðgengi leyst með pallalyftu úti við tröppur við aðalinngang Bessastaðastofu og einnig inni í blómaskála með pallalyftu sem brúar hæðarmun milli skála og stofu. Þessar umbætur hafa verið settar í ferli og verður þeim lokið síðar í ár. Einnig hefur verið unnið að því að koma fyrir snyrtingu fyrir hreyfihamlaða og er snyrtingin í beinum tengslum við móttökusal. Framkvæmdum við snyrtinguna og næsta umhverfi lýkur innan tíðar. Þess má geta að Bessastaðastofa er alfriðað hús með afar hátt varðveislugildi.

2. Staðastaður, skrifstofuhúsnæði forseta við Sóleyjargötu 1.
    Sóleyjargata 1 var reist 1912 og stækkuð 1941 og er húsnæðið friðað. Góð aðkoma hjólastóla er frá Fjólugötu um aðalinngang 1. hæðar sem er í beinum tengslum við móttökurými forseta.

Húsnæði embættis ríkislögmanns.
    Embætti ríkislögmanns er í leiguhúsnæði við Hverfisgötu 4–6 í Reykjavík, en í sama húsi er einnig hluti af starfsemi forsætisráðuneytisins, sbr. framangreint, og vísast til þess sem þar segir.

Húsnæði Hagstofu Íslands.
    Hagstofa Íslands er í leiguhúsnæði við Borgartún 21a. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni er aðgengi fatlaðra að húsnæðinu tryggt bæði í afgreiðslu og vinnuaðstöðu.

Húsnæði umboðsmanns barna.
    Embætti umboðsmanns barna er í leiguhúsnæði í Kringlunni 1 í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu er aðgengi að húsinu sjálfu hindrunarlaust, rúmgóð lyfta og góð salernisaðstaða. Embættið flutti starfsemi sína í núverandi húsnæði árið 2013 m.a. til að geta bætt aðgengi fyrir fatlað fólk.

Húsnæði óbyggðanefndar.
    Óbyggðanefnd er í leiguhúsnæði við Skuggasund 3 í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá nefndinni er húsnæðið aðgengilegt fötluðu fólki.

    Eins og vikið er að í inngangi liggur fyrir ályktun Alþingis nr. 16/146, um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021. Meðal markmiða ályktunarinnar er að fatlað fólk hafi aðgengi að samfélaginu, m.a. manngerðu umhverfi, til jafns við aðra. Þá kann jafnt aðgengi að manngerðu umhverfi einnig að felast í skráðum og óskráðum jafnræðisreglum stjórnsýsluréttarins og 65. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944. Sérlög gilda um friðun húsa, sbr. 5. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2014, m.a. um fyrrnefnt Stjórnarráðshús, sem kann að takmarka möguleika á ráðstöfunum til að tryggja fullnægjandi og jafnan aðgang fyrir fatlaða einstaklinga að viðkomandi húsnæði.

Aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum og gögnum.
    Vefur Stjórnarráðsins, stjornarrad.is, sem er sameiginlegur vefur allra ráðuneyta, uppfyllir aðgengisstefnu um opinbera vefi sem samþykkt var í ríkisstjórn í maí árið 2012. Í aðgengisstefnunni felst að aðgengi sé tryggt, m.a. fyrir blinda, sjónskerta og aðra sem þurfa að nota hjálpartæki. Vefur Stjórnarráðsins er þannig búinn að notendur geta séð eða heyrt efni og aðskilið forgrunn frá bakgrunni. Einstaklingum er kleift, með einföldum hætti, að hlusta á texta að hluta eða í heild með því að merkja það textabrot sem hlusta skal á. Stillingar á síðunni veita jafnframt þann möguleika að breyta leturgerð, leturstærð og lit á texta, auk þess sem hægt er að fá upplýsingar á táknmáli. Þessi stillingaratriði og útfærsla á vefsíðunni er í samræmi við framangreinda aðgengisstefnu um opinbera vefi og lið A.4 í II. hluta áðurnefndrar þingsályktunar nr. 16/146 þar sem markmiðið er að fatlað fólk geti nálgast upplýsingar um rétt sinn og þjónustu við sig.
    Í 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, segir að stjórnvaldi beri að veita aðila máls að stjórnsýslumáli leiðbeiningar, m.a. vegna aðgangs að upplýsingum og gögnum í viðkomandi máli. Þá er í 2. mgr. 14. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, kveðið á um að starfsmanni sé skylt að veita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar þeim sem til hans leitar. Slík framkvæmd innan stjórnsýslunnar stuðlar enn fremur að fullnægjandi aðgengi fyrir fatlað fólk að upplýsingum og gögnum í samræmi við markmið stefnu og framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021 og í samræmi við aðrar jafnræðisreglur.
    Þá hefur Hagstofa Íslands sett sér samskiptastefnu sem miðar að því að auðvelt sé að nálgast upplýsingar og að þær séu auðskiljanlegar.
    Loks má benda á að í flestum stýrikerfum tölva er jafnframt að finna almenn tól til að bæta aðgengi blindra og sjónskertra að upplýsingum og gögnum á vefjum eða í tölvukerfum. Má í því sambandi m.a. nefna tæki á borð við „stækkunargler“, hljóðgervil og vörpun lyklaborðs á skjá.

Stefna og aðgerðaáætlun ráðuneytisins og stofnana þess um aðgengi fatlaðs fólks.
    Eins og áður segir er stöðugt unnið að því í ráðuneytinu, í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks og gildandi þingsályktun nr. 16/146, um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021, að tryggja aðgengi fatlaðs fólks að manngerðu umhverfi og að upplýsingum. Lítur ráðuneytið svo á að þar birtist almenn stefna í málaflokkum sem ráðuneytinu og stofnunum þess beri að virða og hafa hliðsjón af við alla ákvörðunartöku er varðað getur aðgengismál fatlaðs fólks.
    Í lið A.1 í II. hluta fyrrnefndrar þingsályktunar er sett fram það markmið að algild hönnun verði höfð að leiðarljósi við alla skipulagningu manngerðs umhverfis. Þá segir í lið A.7 í II. hluta ályktunarinnar að við skipulagningu nýs húsnæðis beri ávallt að huga að aðgengi fyrir alla, m.a. fatlað fólk. Eins og að framan greinir stendur yfir samkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg, í samræmi við ályktun Alþingis nr. 70/145. Í áformum og hönnunarskilmálum samkeppninnar birtist aðgerðaáætlun forsætisráðuneytisins á sviði aðgangs að manngerðu umhverfi til lengri tíma litið. Sama má segja um yfirstandandi skipulagssamkeppni og áform um uppbyggingu á Stjórnarráðsreitnum en þar verða einnig gerðar kröfur í samræmi við lög, reglugerðir og ályktun Alþingis um aðgengi fatlaðs fólks.