Ferill 588. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1091 — 588. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.
Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.
Meðfylgjandi er sundurliðun á nefndum, stjórnum og ráðum skipuðum samkvæmt lögum og reglugerðum (tafla 1) og nefndum, vinnuhópum og starfshópum sem skipaðir eru tímabundið samkvæmt ákvörðun ráðherra (tafla 2).
Tafla 1. Lögbundnar nefndir, skipaðar af heilbrigðisráðherra.
| Nafn nefndar | Aðalmenn, kk. | Aðalmenn, kvk. | Sam-tals | Hlutfall, kk. | Hlutfall, kvk. |
| Sóttvarnaráð | 4 | 3 | 7 | 57,1% | 42,9% |
| Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra | 2 | 2 | 4 | 50,0% | 50,0% |
| Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Stöðunefnd lækna | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Stjórn lýðheilsusjóðs | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Sérfræðinefnd um kynáttunarvanda skv. 5. gr. laga nr. 57/2012, um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda | 2 | 1 | 3 | 66,7% | 33,3% |
| Lyfjagreiðslunefnd | 3 | 2 | 5 | 60,0% | 40,0% |
| Samstarfsnefnd um sóttvarnir | 3 | 3 | 6 | 50,0% | 50,0% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins | 3 | 3 | 6 | 50,0% | 50,0% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vesturlands | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vestfjarða | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Norðurlands | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Austurlands | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurnesja | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Mats- og hæfisnefnd um starfsnám til að öðlast almennt lækningaleyfi og um sérnám í læknisfræði | 2 | 1 | 3 | 66,7% | 33,3% |
| Nefnd sem skipuleggur námsblokkir fyrir læknakandídata í starfsnámi | 3 | 3 | 6 | 50,0% | 50,0% |
| Vísindasiðanefnd | 3 | 4 | 7 | 42,9% | 57,1% |
| Stjórn Sjúkratrygginga Íslands | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar | 0 | 3 | 3 | 0,0% | 100,0% |
| Fagráð sjúkraflutninga | 4 | 3 | 7 | 57,1% | 42,9% |
| Lyfjanefnd | 3 | 4 | 7 | 42,9% | 57,1% |
| Ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu | 2 | 2 | 4 | 50,0% | 50,0% |
| Ráðgjafarnefnd Landspítala | 4 | 5 | 9 | 44,4% | 55,6% |
| Fagráð við Heyrnar- og talmeinastöð Íslands | 3 | 2 | 5 | 60,0% | 40,0% |
| Samtals: | 53 | 64 | 117 | 45,3% | 54,7% |
Tafla 2. Verkefnaskipaðar nefndir, skipaðar af heilbrigðisráðherra.
| Nafn nefndar | Aðalmenn, kk. | Aðalmenn, kvk. | Sam-tals | Hlutfall, kk. | Hlutfall, kvk. |
| Starfshópur til að útfæra skipulag á þjónustu vegna heyrnar- og talmeina | 2 | 2 | 4 | 50,0% | 50,0% |
| Starfshópur til að gera tillögu að stefnu og aðgerðaáætlun fyrir vísindarannsóknir á heilbrigðissviði | 4 | 3 | 7 | 57,1% | 42,9% |
| Stýrihópur vegna vinnu við gerð heilbrigðisstefnu | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Verkefnahópur vegna vinnu við gerð heilbrigðisstefnu | 1 | 5 | 6 | 16,7% | 83,3% |
| Samstarfsráð um Landspítalaverkefni | 3 | 2 | 5 | 60,0% | 40,0% |
| Stýrinefnd um þróun rafrænnar sjúkraskrár á árunum 2018–2020 | 3 | 3 | 6 | 50,0% | 50,0% |
| Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu heilbrigðisþjónustu | 1 | 2 | 3 | 33,3% | 66,7% |
| Starfshópur um mögulega aukna aðkomu Landhelgisgæslu Íslands (LHG) að sjúkraflugi | 4 | 3 | 7 | 57,1% | 42,9% |
| Nefnd vegna endurskoðunar tveggja reglugerða, reglugerðar nr. 850/2002, um skömmtun lyfja, og reglugerðar nr. 241/2004, um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum | 4 | 6 | 10 | 40,0% | 60,0% |
| Starfshópur um undirbúning útboðs á rekstri sjúkrahótels á landspítalalóð | 1 | 4 | 5 | 20,0% | 80,0% |
| Starfshópur um framþróun í fjarheilbrigðisþjónustu á landsvísu | 5 | 6 | 11 | 45,5% | 54,5% |
| Starfshópur um þá þjónustuþætti sem heyra undir Heyrnar- og talmeinastöð | 4 | 7 | 11 | 36,4% | 63,6% |
| Undirbúningshópur vegna sólarhringsmeðferðar í öndunarvél á heimili sjúklinga | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Starfshópur um skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á Akureyri | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Starfshópur um viðbrögð við vaxandi nýgengi sykursýki | 4 | 3 | 7 | 57,1% | 42,9% |
| Starfshópur um þjónustu, meðferð og stuðning við börn með ADHD og skyldar raskanir | 1 | 4 | 5 | 20,0% | 80,0% |
| Starfshópur um þjónustu við langveik börn | 3 | 6 | 9 | 33,3% | 66,7% |
| Starfshópur til að undirbúa reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Nefnd um samstarfssamning milli Grænlands og Íslands | 2 | 1 | 3 | 66,7% | 33,3% |
| Starfshópur um samráð sveitarfélaga við ríkisvaldið um þjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga | 2 | 3 | 5 | 40,0% | 60,0% |
| Starfshópur um stefnumörkun í tóbaksvörnum | 2 | 5 | 7 | 28,6% | 71,4% |
| Samráðshópur um inntöku vistmanna á hjúkrunarheimilið Sóltún | 0 | 3 | 3 | 0,0% | 100,0% |
| Samtals: | 54 | 80 | 134 | 40,3% | 59,7% |