Ferill 587. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1092  —  587. mál.




Svar


félags- og jafnréttismálaráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.

    Meðfylgjandi er sundurliðun á nefndum, stjórnum og ráðum skipuðum samkvæmt lögum og reglugerðum (tafla1) og nefndum, vinnuhópum og starfshópum sem skipaðir eru tímabundið samkvæmt ákvörðun ráðherra (tafla 2).

Tafla 1. Lögbundnar nefndir, skipaðar af félags- og jafnréttismálaráðherra.

Nafn nefndar Aðalmenn/
kk
Aðalmenn/
kvk
Sam-tals Hlutfall/
kk
Hlutfall/ kvk
Jafnréttisráð 4 7 11 36,4% 63,6%
Samráðsnefnd um stórslysavarnir í iðnaði 2 2 4 50,0% 50,0%
Stjórn Tryggingastofnunar ríkisins 2 3 5 40,0% 60,0%
Flóttamannanefnd 1 2 3 33,3% 66,7%
Félagsdómur 3 2 5 60,0% 40,0%
Kærunefnd jafnréttismála 1 2 3 33,3% 66,7%
Stjórn Húsnæðismálasjóðs 2 2 4 50,0% 50,0%
Prófnefnd eignaskiptayfirlýsinga 2 1 3 66,7% 33,3%
Kærunefnd húsamála 2 1 3 66,7% 33,3%
Réttindavakt fyrir fatlað fólk 4 5 9 44,4% 55,6%
Úrskurðarnefnd velferðarmála 5 7 12 41,7% 58,3%
Stjórn Vinnueftirlits ríkisins 5 4 9 55,6% 44,4%
Samráðsnefnd gjaldskyldra aðila samkvæmt lögum um gjaldtöku vegna umboðsmanns skuldara 2 2 4 50,0% 50,0%
Prófnefnd leigumiðlunar 1 2 3 33,3% 66,7%
Ráðgjafarnefnd Varasjóðs húsnæðismála 3 2 5 60,0% 40,0%
Stjórn Vinnumálastofnunar 4 6 10 40,0% 60,0%
Stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga 2 2 4 50,0% 50,0%
Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 5 4 9 55,6% 44,4%
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra 2 3 5 40,0% 60,0%
Stjórn Íbúðalánasjóðs 3 2 5 60,0% 40,0%
Innflytjendaráð 3 3 6 50,0% 50,0%
Skólanefnd Félagsmálaskóla alþýðu 4 3 7 57,1% 42,9%
Sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk, skv. 14. gr. laga nr. 88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk 3 3 6 50,0% 50,0%
Nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar, skv. 15. gr. laga nr. 88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk 1 2 3 33,3% 66,7%
Stjórn Ábyrgðasjóðs launa 1 2 3 33,3% 66,7%
Jafnréttisnefnd velferðarráðuneytisins 3 3 6 50,0% 50,0%
Eftirlitsnefnd með framkvæmd laga um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES 1 2 3 33,3% 66,7%
Vinnumarkaðsráð Austurlands 4 3 7 57,1% 42,9%
Vinnumarkaðsráð höfuðborgarsvæðisins 4 3 7 57,1% 42,9%
Vinnumarkaðsráð Norðurlands eystra 5 2 7 71,4% 28,6%
Vinnumarkaðsráð Norðurlands vestra 4 3 7 57,1% 42,9%
Vinnumarkaðsráð Suðurlands 3 4 7 42,9% 57,1%
Vinnumarkaðsráð Suðurnesja 4 3 7 57,1% 42,9%
Vinnumarkaðsráð Vestfjarða 3 4 7 42,9% 57,1%
Vinnumarkaðsráð Vesturlands 3 4 7 42,9% 57,1%
Samráðsnefnd um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga 3 3 6 50,0% 50,0%
Samstarfsnefnd um atvinnumál útlendinga 3 2 5 60,0% 40,0%
Samtals: 107 110 217 49,3% 50,7%


Tafla 2. Verkefnaskipaðar nefndir, skipaðar af félags- og jafnréttismálaráðherra.

Nafn nefndar

Aðalmenn/ kk

Aðalmenn/
kvk

Sam-tals

Hlutfall/

kk

Hlutfall/ kvk

Verkefnastjórn um stefnumótun/framtíðarsýn í barnavernd til ársins 2030
2 6 8 25,0% 75,0%
Nefnd til að bregðast við athugasemdum GRECO (e. Group of States Against Corruption) um skipan dómara í Félags-dóm, skv. lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur 4 4 8 50,0% 50,0%
Starfshópur um kjör aldraðra 3 4 7 42,9% 57,1%
Samráðshópur um breytt framfærslukerfi almannatrygginga 5 3 8 62,5% 37,5%
Starfshópur um fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldis-málum 4 5 9 44,4% 55,6%
Nefnd til að meta umfang kynferðislegrar áreitni, kynbund-innar áreitni eða ofbeldis 5 7 12 41,7% 58,3%
Verkefnisstjórn um mótun innleiðingaráætlunar um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumótun og ákvarðanatöku ráðuneyta og stofnana ríkisins 2 4 6 33,3% 66,7%
Starfshópur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga til framfærslu 0 8 8 0,0% 100,0%
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti stjórnanda nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar á sviði félagsþjónustu 1 2 3 33,3% 66,7%
Samráðsnefnd til undirbúnings ráðstefnu í tilefni aldar-afmælis Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) árið 2019 2 3 5 40,0% 60,0%
Starfshópur um eftirfylgni með framkvæmd stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021. 3 3 6 50,0% 50,0%
Nefnd um málefni flóttafólks 4 4 8 50,0% 50,0%
Nefnd um endurskoðun bótakerfa 4 5 9 44,4% 55,6%
Faghópur um starfsgetumat 3 5 8 37,5% 62,5%
Samráðsnefnd um húsnæðismál byggð á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga 2 2 4 50,0% 50,0%
Starfshópur um breytt greiðslufyrirkomulag á dvalar- og hjúkrunarheimilum 4 5 9 44,4% 55,6%
Starfshópur um tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma 1 2 3 33,3% 66,7%
Nefnd um mótun tillögu að vinnuverndarstefnu og skipulagi vinnuverndarmála hér á landi 8 10 18 44,4% 55,6%
Samráðshópur vegna móttöku flóttafólks 4 7 11 36,4% 63,6%
Nefnd til að endurskoða reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005 3 3 6 50,0% 50,0%
Nefnd til að semja nýja framkvæmdaáætlun í barnavernd til fjögurra ára skv. 3. mgr. 5. gr. barnaverndarlaga 2 2 4 50,0% 50,0%
Stýrihópur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess 3 3 6 50,0% 50,0%
Starfshópur um umönnunargreiðslur og greiðslur til foreldra langveikra og/eða fatlaðra barna 3 3 6 50,0% 50,0%
Sérfræðingateymi um þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir 1 2 3 33,3% 66,7%
Velferðarvakt 18 23 41 43,9% 56,1%
Nefnd um málefni hinsegin fólks 7 9 16 43,8% 56,3%
Stjórn lánatryggingasjóðs kvenna ( Svanni ) 1 2 3 33,3% 66,7%
Aðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkað-arins til þess að vinna að launajafnrétti kynjanna 3 6 9 33,3% 66,7%
Samstarfsnefnd um málefni Alþjóðavinnumálastofnunarinnar 2 1 3 66,7% 33,3%
Verkefnisstjórn vegna félagsmálasjóðs Evrópu 3 2 5 60,0% 40,0%
Samráðshópur vegna EES-mála á sviði almannatrygginga 1 6 7 14,3% 85,7%
NOSOSKO, Norræna hagsýslunefndin 2 1 3 66,7% 33,3%
Samtals: 110 152 262 42,0% 58,0%