Ferill 597. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1094  —  597. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um styrki til verkefna og rekstrar á málefnasviði ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig eru styrkir til verkefna á málefnasviði ráðherra auglýstir lausir til umsóknar?
     2.      Hvernig eru umsóknar metnar, hverjir sjá um að meta þær, til hvaða þátta er horft við ákvörðun styrkveitingar og hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
     3.      Hvernig velur ráðherra á milli verkefna sem uppfylla allar kröfur?
     4.      Hversu margar umsóknir bárust, hversu margar umsóknir töldust uppfylla allar kröfur og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012?
     5.      Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
     6.      Veitir ráðuneytið rekstrarstyrki til félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðherra? Ef svo er, hvernig eru þeir ákvarðaðir, til hvaða þátta er horft við ákvörðun styrkveitingar, hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir og hvar á landinu voru þau félagasamtök sem fengu styrki, ár hvert frá árinu 2012?


    Ráðherra veitir styrki til áhugahópa og faglegs starfs. Að auki eru átta sjóðir og verkefni sem heyra undir málefnasvið ráðherra. Fyrirspurninni verður svarað miðað við hverja tegund styrkveitingar fyrir sig.

1. Áhugahópar og faglegt starf.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Ráðuneytið auglýsir á vef Stjórnarráðsins í febrúar ár hvert eftir umsóknum um styrki. Ákveði ráðherra að leggja áherslu á tiltekin mál á verkefnasviði ráðuneytisins skal það koma fram í auglýsingu. Í auglýsingunni skulu koma fram upplýsingar um helstu atriði sem litið er til við mat á umsóknum, hvar og hvernig sækja skuli um auk upplýsinga um umsóknarfrest og hvenær umsóknir verði afgreiddar.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Ráðherra skipar þriggja manna starfshóp sem hefur það hlutverk að meta styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir málefnasvið ráðherra almennt.

Hvernig eru þær metnar?
    Starfshópur metur hverja umsókn fyrir sig út frá sjónarmiðum sem kveðið er á um í settum úthlutunarreglum.


Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Starfshópurinn byggir mat sitt einkum á eftirtöldum sjónarmiðum:
     *      gildi og mikilvægi verkefnisins fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
     *      gildi og mikilvægi verkefnisins fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
     *      nýnæmi og sérstöðu verkefnisins,
     *      því hvort markmið verkefnisins séu skýr, hvernig markmiðum sem stefnt er að verði náð og hvernig árangur verkefnisins verði metinn,
     *      starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjenda og annarra þátttakenda,
     *      eigin framlagi umsækjenda eða annarra þátttakenda til verkefnisins,
     *      fjárhagsgrundvelli verkefnis og því hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
    Starfshópnum er einnig heimilt að leita umsagnar fagaðila ef þess gerist þörf.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þá þætti sem helst er horft til við mat á umsóknum má finna í úthlutunarreglum.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið tók formlega til starfa í september árið 2012 og engir styrkir voru veittir í ráðuneytinu það ár. Árið 2013 var aðeins einn ráðherra í ráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, og flokkast styrkir sem veittir voru það ár undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í þessu svari.

2013 2014 2015 2016 2017 2018
Fjöldi umsókna 25 17 19 24 26 14
Umsóknir sem fengu styrk 16 13 11 15 13 4

    Ekki reyndist unnt að finna upplýsingar um það hversu margar umsóknir frá árinu 2012 uppfylltu allar kröfur. Í lok árs 2017 voru settar úthlutunarreglur um styrki til áhugahópa og faglegs starfs sem kveða á um það hverjar kröfurnar til styrkhæfis eru. Fyrir þann tíma voru kröfurnar ekki skýrt mótaðar.
    Árið 2018 uppfylltu átta umsóknir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra allar kröfur.

Hvernig velur ráðherra á milli verkefna sem uppfylla allar kröfur?
    Starfshópur gerir tillögu til ráðherra um úthlutun og ráðstöfun fjár til verkefna. Tillögur starfshópsins skulu vera skriflegar og geyma í stuttu máli almenna lýsingu á framkvæmd og málsmeðferð við tillögugerðina. Sérhverri umsókn skal fylgja stutt umsögn ásamt tillögu um afgreiðslu hennar. Ráðherra tekur ákvörðun um styrkveitingu á grundvelli framkominna tillagna.

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið tók formlega til starfa í september árið 2012 og engir styrkir voru veittir í ráðuneytinu það ár. Árið 2013 var aðeins einn ráðherra í ráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, og flokkast styrkir sem veittir voru það ár undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í þessu svari.

2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heildarupphæð 27.450.000 16.250.000 11.350.000 11.800.000 8.375.000 3.400.000

    Ekki reyndist unnt að taka saman upplýsingar um hvaðan af landinu styrkhafar voru frá árinu 2012. Við úthlutun árið 2018 var tekið upp nýtt verklag sem gerir ráð fyrir að haldið verði utan um lýðfræðilegar breytur eins og staðsetningu umsækjenda.
    Úthlutanir styrkja skiptust með eftirfarandi hætti milli landshluta árið 2018:

Landshluti Fjöldi
Höfuðborgarsvæðið 3
Norðurland vestra 1

2. Verkefnasjóður sjávarútvegsins.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Umsóknir í almenna deild eru metnar samkvæmt reglum verkefnasjóðsins og samkvæmt áliti fagaðila í sjávarútvegi. Styrkir úr almennu deildinni eru ekki auglýstir þar sem áskilið er í reglum sjóðsins að einungis fjórir aðilar geti sótt um styrki. Styrkir úr deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði voru auglýstir í fjölmiðlum samkvæmt reglum sjóðsins.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Skipuð hefur verið stjórn yfir almenna deild sem sér um að meta umsóknirnar. Hjá deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði voru umsóknir metnar af fagaðilum í sjávarútvegi.

Hvernig eru þær metnar?
    Umsóknir í almenna deild eru metnar samkvæmt reglum verkefnasjóðsins og samkvæmt áliti fagaðila í sjávarútvegi. Umsóknir í deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði voru metnar samkvæmt reglum um verkefnasjóðinn en þar er tilgreint hvaða skilyrði umsóknirnar þurfa að uppfylla.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Almenna deild sjóðsins hefur að mestu farið í að styrkja rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á liðnum árum. Þar sem verulegur samdráttur hefur orðið á tekjum verkefnasjóðsins á liðnum árum hefur ekki verið unnt að veita styrki úr deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Vísað er til þess sem að framan greinir.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Styrkjum fyrir 2012 var úthlutað áður en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið var stofnað og því eru ekki til upplýsingar fyrir það ár.

Almenn deild 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 11 6 5 4 4
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 8 5 4 4 3
Umsóknir sem fengu styrk 6 8 5 4 4

Samkeppnisdeild 2013
Fjöldi umsókna 1
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 1
Umsóknir sem fengu styrk 1

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Styrkjum fyrir árið 2012 var úthlutað áður en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið var stofnað og því eru ekki til upplýsingar fyrir það ár.

Almenn deild 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 547.600.000 443.400.000 441.900.000 435.000.000 460.000.000

Samkeppnisdeild
Heildarupphæð
20.000.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

Almenn deild 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 7 4 4 4 2
Norðurland eystra 1
Erlendis 1 1

Samkeppnisdeild 2013
Höfuðborgarsvæðið 4
Norðurland eystra 2

3. Sjóður til síldarrannsókna.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Sjóðurinn var stofnaður með lögum nr. 43/1998, en þar er kveðið á um að styrkir úr honum skuli renna til síldarrannsókna á vegum Hafrannsóknastofnunar. Stofnunin sendir erindi eða umsókn þegar hún hefur verkefni sem hún telur falla að hlutverki sjóðsins.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Sérfræðingur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sér um að meta umsóknirnar.

Hvernig eru þær metnar?
    Litið er til þess hvort eðli verkefnis samræmist hlutverki sjóðsins er umsóknir eru metnar.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Horft er til laga nr. 43/1998, um stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegsins, þegar ákvörðun um styrkveitingar er tekin.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Lögin voru samþykkt á Alþingi og tóku gildi 29. maí 1998.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 1 1 1 1
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 1 1 1 1
Umsóknir sem fengu styrk 1 1 1 1

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 14.466.720 31.000.000 9.000.000 8.700.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 1 1 1 1

4. Umhverfissjóður sjókvíaeldis.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Styrkirnir eru auglýstir í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og á heimasíðu ráðuneytisins í lok nóvember ár hvert.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Stjórn Umhverfissjóðs sjókvíaeldis metur umsóknirnar með hliðsjón af umsögn frá tveimur sérfræðingum í málaflokknum.

Hvernig eru þær metnar?
    Styrkir sjóðsins eru ætlaðir rannsókna- og háskólastofnunum, fiskeldisfyrirtækjum og öðrum einstaklingum og lögaðilum. Sjóðurinn gerir kröfu um að fyrir liggi fjárhagsáætlun verkefnisins eða verkhlutans sem sótt er um styrk fyrir. Stjórn sjóðsins leggur faglegt mat á umsóknir, forgangsraðar verkefnum og ákveður styrkfjárhæðir. Við ákvörðun um styrki skal m.a. haft til hliðsjónar framlag umsækjanda til verkefnisins, þ.e. fjárhagslegt, vísindalegt (þekkingarlegt) og tæknilegt. Við mat á umsóknum skal lögð áhersla á hæfni umsækjenda til að leysa verkefnin, þekkingu þeirra, reynslu, aðstöðu og á það hversu raunhæfar áætlanir eru. Einnig skal litið til samstarfs við fagaðila þegar ákvörðun er tekin um styrkveitingu og horft til þess hvort verkefnin séu í þágu heildarhagsmuna fiskeldis. Verkefnum skal forgangsraðað í samræmi við áherslur stjórnar sjóðsins hverju sinni.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Horft er til eftirfarandi þátta:
     *      Markmið sjóðsins er að lágmarka umhverfisáhrif sjókvíaeldis. Með sjóðnum skal greiða kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats, vöktunar og annarra verkefna sem stjórn sjóðsins ákveður.
     *      Sjóðurinn skal styðja með öflugum hætti við þau verkefni sem lúta að umhverfisvöktun með sjókvíaeldi þannig að meta megi burðarþol eldissvæða og halda áfram að byggja upp þekkingu á þessu sviði.
     *      Verkefni sem hljóta stuðning skulu vera líkleg til að kynna hagkvæmar lausnir til að minnka skaða sem sjókvíaeldi getur valdið í íslenskri náttúru, þar á meðal mögulega erfðablöndun við náttúrulega laxastofna og skaða vegna laxalúsar og mengunar.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þegar ákvarðað er hvaða þætti skal leggja til grundvallar er horft á tilgang sjóðsins, sem kemur fram í 20. gr. a–g laga nr. 71/2008, um fiskeldi.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 6 9 10
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 6 9 9
Umsóknir sem fengu styrk 3 7 7

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2015 2016 2017
Heildarupphæð 38.000.000 39.971.000 86.615.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 2 7 7
Vestfirðir 1 3

5. Fiskræktarsjóður.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Auglýst er í Bændablaðinu, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í kringum síðasta laugardag í janúar.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Stjórn Fiskræktarsjóðs sér um að meta umsóknirnar.

Hvernig eru þær metnar?
    Hver og einn stjórnarmaður fær sendar upplýsingar frá starfsmanni Fiskistofu um allar umsóknir ásamt ljósritum af öllum fylgigögnum. Í IV. grein verklagsreglna sem stjórn sjóðsins setti 31. ágúst 2016 segir: „Við mat á umsóknum er lögð áhersla á nýnæmi rannsókna og framkvæmda til að ná sem best markmiðum sjóðsins. Horft er til hæfni umsækjenda til að leysa verkefnið, þekkingar, reynslu, aðstöðu og raunhæfni áætlana (verk-, kostnaðar- og fjármögnunaráætlunar). Einnig er litið til samstarfs við fagaðila þegar ákvörðun er tekin um styrkveitingu og horft til þess hvort verkefnin séu í þágu heildarhagsmuna.“
    Þetta eru þau grunnatriði sem horft er á við mat á umsóknum. Umsóknirnar eru ærið margbreytilegar og misjafnar að gæðum þar sem stofnanir og stærri aðilar hafa þekkingu á gerð umsókna en lítil veiðifélög hafa ekki aðgang að fagaðilum við gerð umsókna.
    Hver og einn stjórnarmaður metur hverja umsókn og gefur einkunn sem byggist á þeim þáttum sem stjórnin leggur til grundvallar (sjá næsta lið). Á stjórnarfundi er síðan farið yfir hverja umsókn um sig og stjórnarmenn ræða einkunnagjöfina. Þá er farið yfir allar umsóknirnar aftur og styrkupphæðir ákveðnar miðað við getu sjóðsins og kostnað við einstök verkefni.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Horft er til eftirfarandi þátta:
     *      hvort verkefnið stuðli að því að viðhalda og efla lífríki í ám og vötnum almennt,
     *      hvort verkefnið sé til þess fallið að efla lax eða silungagengd í einstökum veiðivötnum,
     *      hvort verkefnið sé til þess fallið að efla veiði í tilteknu veiðivatni á sjálfbæran hátt.
    Aðrir þættir sem horft er til eru þessir:
     *      Stjórn sjóðsins tók þá ákvörðun að styrkja ekki grunnrannsóknir. Ástæðan fyrir því er sú skoðun stjórnarinnar að þær séu alfarið verkefni ríkisins og af þeirri stærðargráðu að fjármunir sjóðsins komi ekki að miklum notum.
     *      Stjórn sjóðsins lítur jákvæðum augum á sértækar rannsóknir.
     *      Stjórn sjóðsins styrkir ekki rekstur veiðifélaga, byggingu veiðihúsa eða viðhald vega og slóða.
     *      Stjórn sjóðsins styrkir gerð fiskivega (laxastiga), enda efli framkvæmdin veiði og laxagengd í viðkomandi veiðivatni. Einnig styrkir hún gerð slóða, enda bæti það aðgengi að veiðivatni.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þegar ákvarðað er hvaða þætti skal leggja til grundvallar er horft á tilgang sjóðsins, sem kemur fram í 1. gr laga um sjóðinn, og á verklagsreglur sem stjórn sjóðsins hefur sett.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 32 29 27 31 31 47
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 21 19 16 22 27 28
Umsóknir sem fengu styrk 21 19 16 22 27 28

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 13.850.000 17.265.000 13.420.000 18.750.000 29.150.000 32.710.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 4 2 3 3 4 6
Suðurnes 1
Vesturland 3 2 2 2 3 5
Vestfirðir 1 1 2 3 1
Norðurland vestra 3 4 2 4 7 4
Norðurland eystra 4 5 1 6 4 7
Austurland 1 1 3 1 2
Suðurland 4 4 1 5 5 3
Erlendis 4

6. Þróunarfé hrossaræktar.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Styrkirnir eru auglýstir lausir til umsóknar í fjölmiðlum.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Sérfræðingar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sjá um að meta umsóknirnar.

Hvernig eru þær metnar?
    Umsóknirnar eru metnar eftir fyrirframgefnum forsendum. Tilgangur styrkveitinganna er að efla markaðssókn og ræktun íslenska hestsins og fylgja þannig eftir árangri þeim er náðst hefur í aukinni fagmennsku í hrossarækt og þjálfun íslenska hestsins.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Horft er til forsendna sem gefnar eru upp í auglýsingu. Styrkhæf eru hvers konar verkefni er lúta að:
     *      kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð,
     *      tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi,
     *      markaðs-, kynningar- og nýsköpunarstarfi.
    Lögð er megináhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunarverkefni sem geta orðið sjálfbær þegar þróunartímabili þeirra lýkur, en einnig á það að styrkja útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rannsóknir. Styrkir eru einkum veittir félögum, samtökum eða einstaklingum.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þeir þættir voru ákvarðaðir í upphafi og breytast ekki.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?
    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 11 13 13 10 7 8
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 7 10 10 6 6 7
Umsóknir sem fengu styrk 7 10 4 4 6 7

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?
    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 5.700.000 8.500.000 5.150.000 6.250.000 5.600.000 5.600.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 4 8 4 4 3 3
Norðurland vestra 2 1 1
Suðurland 1 1 1 1
Erlendis 1 3

7. Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Styrkir Framleiðnisjóðs eru auglýstir með reglubundnum hætti í Bændablaðinu enda nær sá miðill afar vel til markhópa sjóðsins. Einnig eru þeir auglýstir á heimasíðu sjóðsins.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Stjórn sjóðsins hverju sinni sér um að meta umsóknirnar.

Hvernig eru þær metnar?
    Árið 2017 voru innleiddir samræmdir matskvarðar sem eru notaðir við mat og forgangsröðun umsókna. Áður voru umsóknir metnar samkvæmt áherslum sjóðsins hverju sinni.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Horft er til þess að um hagnýt rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði landbúnaðar og afurðavinnslu sé að ræða, sem ætlað er að ná markmiðum sínum á tiltölulega skömmum tíma. Þær umsóknir sem sýna verulega nýbreytni og stuðla að fjölgun atvinnutækifæra í sveitum njóta forgangs að því er varðar nýsköpun á bújörðum.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þeir þættir eru ákvarðaðir með notkun matskvarða sem gera ákvörðunartöku um styrkveitingar faglegri, styrkja rökstuðning með ákvörðunum og auðvelda upplýsingamiðlun til umsækjenda.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?

    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 74 88 99 75 83 86
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 73 88 97 73 82 84
Umsóknir sem fengu styrk 52 38 53 54 53 58

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?

    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 109.300.000 69.300.000 88.700.000 107.100.000 119.200.000 121.100.000

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 5 5 9 13 13 11
Suðurnes 1 1 1
Vesturland 14 12 16 19 12 17
Vestfirðir 3 3 1
Norðurland vestra 7 4 9 3 5 4
Norðurland eystra 9 5 4 8 11 6
Austurland 1 3 6 6 9
Suðurland 12 8 8 5 9 10

8. AVS – rannsóknasjóður í sjávarútvegi.
Hvernig eru styrkir auglýstir lausir til umsóknar?
    Styrkir sem eru lausir til umsóknar eru auglýstir í blöðum. Auglýsing er sömuleiðis sett á heimasíðu sjóðsins og send til atvinnuþróunarfélaga.

Hverjir sjá um að meta umsóknirnar?
    Skipaðir eru faghópar um hvern málaflokk, fjórir til fimm talsins, sem sjá um að meta umsóknirnar.

Hvernig eru þær metnar?
    Umsóknir eru metnar samkvæmt AVS-gildi (því hve mikilli verðmætaaukningu viðkomandi verkefni er talið skila) en einnig er tekið mið af nýnæmi verkefnis, fjárhagsáætlun og af framkvæmdaáætlun.

Til hvaða þátta er horft við ákvörðun um styrkveitingar?
    Vísað er til næsta liðar á undan um þetta.

Hvernig eru þeir þættir ákvarðaðir?
    Þættirnir er ákvarðaðir eftir áætluðu mikilvægi.

Hversu margar umsóknir bárust og hversu mörg verkefni hlutu styrk, ár hvert frá árinu 2012? Hversu margar umsóknir sem bárust frá árinu 2012 töldust uppfylla allar kröfur?

    Yfirlit um þetta má sjá í eftirfarandi töflu:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fjöldi umsókna 191 163 116 108 75 64
Umsóknir sem uppfylltu kröfur 87 68 50 49 40 47
Umsóknir sem fengu styrk 72 56 46 40 37 42

Hver var heildarupphæð úthlutunar og hvar á landinu voru styrkhafar, ár hvert frá árinu 2012?

    Heildarupphæð úthlutunar var eins og hér greinir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heildarupphæð 335.050.000 259.984.000 239.600.000 218.401.000 252.867.000 250.270.500

    Staðsetning styrkhafa eftir landshlutum var sem hér segir:

2012 2013 2014 2015 2016 2017
Höfuðborgarsvæðið 41 32 26 26 23 24
Suðurnes 5 3 5 1 2 2
Vesturland 6 3 1 2 3
Vestfirðir 7 2 5 2 2
Norðurland vestra 5 7 5 5 4 7
Norðurland eystra 4 5 2 4 3 4
Austurland 3 3 2 1 v
Suðurland 1 1 2 1
Erlendis 1

9. Bjargráðasjóður.
    Ný stjórn var skipuð í Bjargráðasjóð fyrr á árinu 2018. Þegar fyrirspurnin barst ráðuneytinu höfðu stjórninni ekki borist gögn frá fráfarandi stjórn og því er ekki hægt að svara fyrirspurninni að svo stöddu.