Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1125  —  481. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um köfun.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Björn Frey Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Einar Á.E. Sæmundsen og Lilju Jónasdóttur frá þjóðgarðinum á Þingvöllum og Kristínu Helgu Markúsdóttur, Ólaf Briem og Magnús Dige Baldursson frá Samgöngustofu.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Dive.is, Landhelgisgæslu Íslands, þjóðgarðinum á Þingvöllum og Samgöngustofu.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um köfun í atvinnuskyni í stað gildandi laga nr. 31/1996, um köfun.
    Gildandi lög um köfun einskorðast við leyfi til atvinnuköfunar. Gildissvið frumvarpsins er aftur á móti opnara og getur tekið til áhugaköfunar. Fram kom í umsögnum að nauðsynlegt væri að afmarka gildissvið laganna með skýrum hætti og að það næði bæði til djúpköfunar og yfirborðsköfunar (snorkls). Nefndin áréttar mikilvægi þess að ný lög um köfun taki einnig til annars konar köfunar en þar sem kafari notar loftgjafa og öndunargrímu, þ.e. til fyrrgreinds snorkls og fríköfunar (djúpköfunar án öndunargrímu og loftgjafa). Þau tvö afbrigði köfunar verða æ vinsælli, einkum í Þingvallavatni og Silfru. Þar með eykst slysahætta en þegar hafa orðið slys við þessa iðju á þeim slóðum. Nefndin leggur því til að komið verði til móts við þessi sjónarmið með breytingu á skilgreiningum á köfun og að bætt verði við skilgreiningu á köfunarbúnaði.
    Bent var á nauðsyn þess að setja skilyrði sem áhugakafarar yrðu að uppfylla til þess að mega stunda köfun og tryggja að leiðbeinendur og aðrir þeir aðilar sem sæju um kennslu gengju úr skugga um að viðkomandi áhugamaður uppfyllti þau. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og leggur til að bætt verði við skilyrðum fyrir því að stunda áhugaköfun.
    Í umsögn um málið var gagnrýnt að allt eftirlit með köfun væri á hendi Samgöngustofu. Bent var á að ef til vill væru aðrir aðilar færari um að framkvæma vettvangsrannsóknir en Samgöngustofa. Nefndin tekur undir þau sjónarmið en telur engu síður mikilvægt að skýrt sé að Samgöngustofa fari með eftirlit skv. 1. mgr. 11. gr. frumvarpsins. Nefndin leggur til breytingar á 2. mgr. 11. gr. til að koma til móts við framangreind sjónarmið.
    Nefndinni bárust athugasemdir frá rannsóknarnefnd samgönguslysa um orðalag 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins þar sem tiltekið er að niðurstöður rannsóknar lögreglu skuli sendar rannsóknarnefnd samgönguslysa til umfjöllunar og álitsgjafar. Að mati rannsóknarnefndarinnar væri mjög erfitt fyrir hana að veita álit sitt á einhverju sem hún hefði ekki rannsakað sjálf. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og leggur til að tekinn verði af allur vafi um að rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaki köfunarslys. Slíkar rannsóknir eru óháðar rannsóknum lögreglu og byggjast á lögum um rannsókn samgönguslysa, nr. 18/2013.
    Reglugerðarheimild 16. gr. er víðtæk og hvetur nefndin til þess að skýr ákvæði um eftirlit með köfunarbúnaði, starfsháttum ferðaþjónustufyrirtækja sem selja aðgang að köfun og umhverfisálagi á köfunarstöðum komi þar fram.
    Nefndin telur þörf á að aðilar sem hyggjast kafa utan skilgreindra þjónustusvæða, sbr. Silfru og Davíðsgjá á Þingvöllum, tilkynni um fyrirhugaða köfun og hafi til hennar leyfi þar sem við á. Það á við svæði í einkaeigu, þjóðgarða og friðlýst svæði og staði í óbyggðum, fjarri alfaraleið. Um bæra aðila til þess að taka við tilkynningum verði kveðið á í reglugerð, svo sem Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Landsbjörg og lögreglu í umdæminu. Fordæmi tilkynninga af svipuðu tagi eru kunn, svo sem tilkynningar til Landsbjargar um ferðir á víðfeðma jökla eða há fjöll og langar göngu- eða skíðaferðir um óbyggðir.
    Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. júní 2018.

Bergþór Ólason,
form.
Ari Trausti Guðmundsson,
frsm.
Hanna Katrín Friðriksson.
Helga Vala Helgadóttir. Jón Gunnarsson. Karl Gauti Hjaltason.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Rósa Björk Brynjólfsdóttir.