Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1131  —  494. mál.

Síðari umræða.


Breytingartillaga


við tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2019–2023.

Frá 3. minni hluta fjárlaganefndar (BirgÞ).


    Við töfluna Heildarútgjöld málefnasviða árin 2019–2023 og töfluna Útgjaldarammar málefnasviða árin 2019–2023. Eftirfarandi liðir breytist sem hér segir:

Millj. kr. 2019 2020 2021 2022 2023
a. 09 Almanna- og réttaröryggi
Skv. frumskjali
28.576 28.736 28.653 28.748 29.046
Breyting
40 40 40 40 40
Samtals
28.616 28.776 28.693 28.788 29.086
b. 20 Framhaldsskólastig
Skv. frumskjali
31.612 31.649 31.635 31.948 32.311
Breyting
0 35 0 0 0
Samtals
31.612 31.684 31.635 31.948 32.311
c. 23 Sjúkrahúsþjónusta
Skv. frumskjali
98.127 103.589 110.311 109.150 109.953
Breyting
93 93 93 93 93
Samtals
98.220 103.682 110.404 109.243 110.046

Greinargerð.

    Hér er lagt til að á gildistíma fjármálaáætlunar komi til greiðslu sérstakt aukafjárframlag til lögbundinna stofnana ríkisins á Suðurnesjum að fjárhæð samtals 700 millj. kr.: 93 millj. kr. árlega til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS), 40 millj. kr. árlega til embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum og 35 millj. kr. einskiptisfjárframlag til Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Lagt er til að 7% af hreinum tekjum ríkissjóðs af sölu eigna Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco renni til þessara verkefna.