Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1142 — 362. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um störf þingmanna á vegum framkvæmdarvaldsins.
1. Hvaða þingmenn hafa setið í nefndum, ráðum, framkvæmdahópum eða öðrum hópum á vegum ráðuneytisins ár hvert frá árinu 2006?
Frá árinu 2006 hafa þrjú ráðuneyti verið starfandi á núverandi málefnasviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Frá 2006–2011 var starfandi samgönguráðuneytið, frá 2011–2017 innanríkisráðuneytið og frá 1. maí 2017 núverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Hér að neðan eru birtar upplýsingar fyrir hvert ráðuneyti fyrir sig út frá þeim gögnum sem til eru. Upplýsingarnar fyrir bæði innanríkisráðuneytið og samgönguráðuneytið eru birtar með þeim fyrirvara að ekki er til heildstætt gagnasafn með þessum upplýsingum. Upplýsingar um launagreiðslur til þingmanna á tímabilinu voru fengnar frá Fjársýslunni.
1. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.
Þingmenn sem hafa setið í nefndum, ráðum, framkvæmdahópum eða öðrum hópum á vegum ráðuneytisins ár hvert, heiti nefndar, heildarlaun á tíma ráðuneytisins og afurð 1. maí 2017 – 1. janúar 2018.
| Þingmaður | Nefnd | Laun, kr. | Afurð |
| Ásmundur Friðriksson |
Formaður samgönguráðs |
957.360 |
Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun |
| Haraldur Benediktsson | Stjórn fjarskiptasjóðs | 921.264 | Sjá lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005 |
| Bryndís Haraldsdóttir |
Formaður í starfshópi um endurskoðun laga um gatnagerðargjöld | Ólaunað |
Starfshópur enn að störfum |
| Njáll Trausti Friðbertsson |
Formaður starfshóps um rekstur innanlandsflugvalla | Ólaunað |
Starfshópur enn að störfum |
| Pawel Bartoszek | Verkefnisnefnd sem hefur það hlutverk að fjalla um álitamál tengd alþjónustu í pósti | Ólaunað | Nefndin skilaði skýrslu til ráðuneytisins 21. september 2017 |
2. Innanríkisráðuneytið.
Þingmenn sem hafa setið í nefndum, ráðum, framkvæmdahópum eða öðrum hópum á vegum ráðuneytisins ár hvert, heiti nefndar, heildarlaun á tíma ráðuneytisins og afurð.
| Þingmaður | Nefnd | Laun, kr. | Afurð |
| Ásmundur Friðriksson | Formaður samgönguráðs | 352.225 | Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun |
| Björn Valur Gíslason | Formaður siglingaráðs | 257.553 | Samráðsvettvangur |
| Guðfríður Lilja Grétarsdóttir | Fjarskiptasjóður | 309.416 | Sjá lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005 |
| Haraldur Benediktsson | Fjarskiptasjóður | 1.266.738 | Sjá lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005. |
| Brynjar Nielsson | Nefnd sem hefur það hlutverk að gera úttekt á umfangi ólöglegs niðurhals, á netinu, á höfundarréttarvörðu efni hér á landi og hvort íslensk lagaumgjörð veiti slíku efni nægjanlega vernd | Ólaunað | Formaður nefndar lagði fram drög að skýrslu nefndar, en ekki náðist sátt nefndarmanna um skýrsluna |
| Jóhanna María Sigmundsdóttir | Nefnd um gerð tillagna til ráðherra um ráðstöfun sérstakrar fjárveitingar til að efla almenna löggæslu í landinu | Ólaunað | Skýrsla |
| Helgi Hrafn Gunnarsson | Nefnd um gerð tillagna til ráðherra um ráðstöfun sérstakrar fjárveitingar til að efla almenna löggæslu í landinu | Ólaunað | Skýrsla |
| Vilhjálmur Árnason | Nefnd um gerð tillagna til ráðherra um ráðstöfun sérstakrar fjárveitingar til að efla almenna löggæslu í landinu | Ólaunað | Skýrsla |
| Vilhjálmur Árnason | Starfshópur um endurskoðun innihalds lögreglunáms | Ólaunað | Skýrsla |
| Silja Dögg Gunnarsdóttir | Starfshópur um endurskoðun innihalds lögreglunáms | Ólaunað | Skýrsla |
| Haraldur Benediktsson | Starfshópur sem hefur það hlutverk að fara yfir stöðu breiðbandsvæðingar hér á landi | Ólaunað | Skýrsla |
| Páll Jóhann Pálsson | Starfshópur sem hefur það hlutverk að fara yfir stöðu breiðbandsvæðingar hér á landi | Ólaunað | Skýrsla |
| Valgerður Gunnarsdóttir | Starfshópur um gjaldtöku í innanlandsflugi | Ólaunað | Skýrsla |
| Steingrímur J. Sigfússon | Starfshópur um gjaldtöku í innanlandsflugi | Ólaunað | Skýrsla |
| Brynhildur Pétursdóttir | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Willum Þór Þórsson | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Oddný G. Harðardóttir | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Jón Þór Ólafsson | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Elín Hirst | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Bjarkey Gunnarsdóttir | Stýrihópur sem hefur það hlutverk að vinna neytendaáætlun til fjögurra ára | Ólaunað | Þingsályktun |
| Unnur Brá Konráðsdóttir | Stýrihópur um nýja framtíðarsýn í málaflokkum Þjóðskrár Íslands og Útlendingastofnunar | Ólaunað | Skýrsla |
| Unnur Brá Konráðsdóttir | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
| Óttarr Proppé | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
| Birgitta Jónsdóttir | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
| Líneik Anna Sævarsdóttir | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
| Össur Skarphéðinsson | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
| Svandís Svavarsdóttir | Þingmannanefnd um málefni útlendinga | Ólaunað | Frumvarp til laga um útlendinga |
3. Samgönguráðuneytið.
Þingmenn sem hafa setið í nefndum, ráðum, framkvæmdahópum eða öðrum hópum á vegum ráðuneytisins ár hvert, heiti nefndar, heildarlaun á tíma ráðuneytisins og afurð.
| Þingmaður | Nefnd | Laun, kr. | Afurð |
| Ásbjörn Óttarsson | Siglingráð | 245.350 | Ráðgjöf til ráðherra á sviði siglinga |
| Bjarni Benediktsson | Framtíðarskipan flugmála | 91.946 | Skýrsla |
| Björn Valur Gíslason | Siglingráð | 595.773 | Ráðgjöf til ráðherra á sviði siglinga |
| Dagný Jónsdóttir | Ferðamálaráð | 119.400 | Að gera árlega eða oftar, tillögu til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar |
| Einar Oddur Kristjánsson | Ferðamálaráð | 419.800 | Að gera árlega eða oftar, tillögu til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar |
| Gunnar Svavarsson | Stjórn fjarskiptasjóðs | 1.385.645 | Sjá lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005 |
| Hjálmar Árnason | Stjórn fjarskiptasjóðs | 808.636 | Sjá lög um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005 |
| Oddný Guðbjörg Harðardóttir | Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar | 200.880 | Aðal- og deiliskipulag Keflavíkurflugvallar |
| Árni Þór Sigurðsson | Tekjustofnanefnd | Ólaunað | Skýrsla |
| Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir | Hafnaráð | Ólaunað | Ráðgjöf til ráðherra á sviði hafnamála |
| Bjarni Benediktsson | Flugráð | Ólaunað | Ráðgjöf til ráðherra á sviði flugmála |
| Dagný Jónsdóttir | Nefnd um framtíðarskipan stofnana samgöngumála | Ólaunað | Skýrsla |
| Dagný Jónsdóttir | Nefnd um sameiningar sveitarfélaga | Ólaunað | Skýrsla |
| Herdís Þórðardóttir | Starfshópur um aukningu hlut kvenna í sveitarstjórnum | Ólaunað | Greinargerð |
| Illugi Gunnarsson | Stýrihópur vegna kynningarátaks í Norður-Ameríku (IN) | Ólaunað | Óljóst |
| Jón Gunnarsson (Sjálfstæðisflokki) | Skólanefnd slysavarnaskóla sjómanna | Ólaunað | Sjá lög nr. 33/1991 |
| Jón Gunnarsson (Samfylkingu) | Stýrihópur um stofnun Keflavíkurflugvallar ohf. | Ólaunað | Undirbúningur að rekstri Keflavíkurflugvallar ohf. |
| Karl V. Matthíasson | Umferðarráð | Ólaunað | Ráðgjöf til ráðherra á sviði umferðarmála |
| Lilja Rafney Magnúsdóttir | Skólanefnd slysavarnarskóla sjómanna | Ólaunað | Sjá lög nr. 33/1991 |
| Ragnheiður E. Árnadóttir | Stýrihópur vegna kynningarátaks í Evrópu (IN) | Ólaunað | Óljóst |
| Róbert Marshall | Stýrihópur vegna Bakkafjöru | Ólaunað | Skýrsla |
| Unnur Brá Konráðsdóttir | Stýrihópur vegna Bakkafjöru | Ólaunað | |
| Unnur Brá Konráðsdóttir | Starfshópur um aukningu hlut kvenna í sveitarstjórnum | Ólaunað | Greinargerð |
| Þór Saari | Tekjustofnanefnd | Ólaunað | Skýrsla |
2. Hverjar þessara nefnda voru launaðar og hver voru árleg laun hvers þingmanns?
Sjá töflu en þar eru tilgreind samtals greidd laun til þingmanns á starfstíma hvers ráðuneytis á tímabilinu.
3. Hvað má ætla að þingmenn hafi lagt mikla vinnu í tímum talið í störf fyrir nefndina ár hvert?
Ekki er haldið utan um vinnuframlag þingmanna líkt og gert er þegar um verktakavinnu er að ræða. Enginn þingmaður hefur þegið verktakagreiðslur á þessum tíma frá ráðuneytinu og því eru þessar upplýsingar ekki aðgengilegar.
4. Hafa þingmenn fengið laun fyrir aðra vinnu á vegum ráðuneytisins? Ef svo er, fyrir hvað og hvenær?
Ráðuneytið leitaði til fjársýslunnar og bað um gögn um þingmenn sem hafa fengið greiðslur frá þeim þremur ráðuneytum sem um er að ræða. Samkvæmt þeim upplýsingum voru engar greiðslur til sitjandi þingmanna fyrir aðra vinnu á vegum ráðuneytisins á þessum árum.
5. Hafa þingmenn unnið ólaunaða vinnu við verkefni eða nefndastörf á vegum ráðuneytisins frá árinu 2006, og ef svo er, hvaða?
Sjá töflur.
6. Hafa þingmenn fengið laun sem verktakar frá ráðuneytinu frá árinu 2006 og ef svo er, fyrir hvaða verkefni og hver var fjárhæð umbunar fyrir það?
Ráðuneytið leitaði til fjársýslunnar og bað um gögn um þingmenn sem hafa fengið greiðslur frá þeim þremur ráðuneytum sem um er að ræða. Samkvæmt þeim upplýsingum voru engar greiðslur til sitjandi þingmanna fyrir verktakavinnu á vegum ráðuneytisins á þessum árum.
7. Hvaða „afurð“ skilaði hver nefnd sem þingmaður átti sæti í af sér í lok starfstíma nefndarinnar og hvert var henni skilað?
Sjá töflur.
8. Hvaða reglur hefur ráðuneytið sett um setu þingmanna í nefndum á vegum ráðuneytisins?
Ráðuneytið hefur ekki sett sér reglur um setu þingmanna í nefndum á vegum ráðuneytisins.