Ferill 674. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1293  —  674. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um sölu fullnustueigna Íbúðalánasjóðs.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


    Hverjir voru kaupendur fullnustueigna Íbúðalánasjóðs 2008–2017? Upplýsingar óskast annars vegar um einstaklinga og hins vegar um fyrirtæki og eignarhald.


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Í svari ráðherra á þskj. 985 við fyrirspurn á þskj. 305 um sölu fullnustueigna Íbúðalánasjóðs kom fram að ráðuneytið mundi afla álits Persónuverndar varðandi nánari tilgreiningu á kaupendum fullnustueigna Íbúðalánasjóðs. Fyrirspurnin er nú endurtekin lítt breytt með hliðsjón af bréfi Persónuverndar dags. 11. júní sl. um að hún leggist ekki gegn því að upplýst verði um nöfn kaupenda.