Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 87  —  87. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd.


Flm.: Njáll Trausti Friðbertsson, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Jón Gunnarsson, Vilhjálmur Árnason.


    Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hefja undirbúning að endurnýjun vegarins yfir Kjöl sem heilsársvegar með einkaframkvæmd. Ráðherra hlutist í þessu skyni til um að gerð verði forkönnun á umhverfisáhrifum og samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum framkvæmdarinnar, m.a. á ferðaþjónustu, byggðaþróun og náttúruvernd. Stefnt verði að því að undirbúningi framkvæmda ljúki fyrir árslok 2019 og framkvæmdir hefjist í beinu framhaldi.

Greinargerð.

    Sambærilegt mál var áður flutt á 145. löggjafarþingi (650. mál) og 148. löggjafarþingi (473. mál), en náði ekki fram að ganga. Hugmynd tillögunnar gengur út á að einkaaðilum verði falin uppbygging og endurnýjun núverandi Kjalvegar sem ferðamannavegar. Framkvæmdin mun því ekki hafa áhrif á forgangsröðun samgönguáætlunar.
    Mörg rök hníga að því að endurbæta vegarkaflann og má þar nefna öryggissjónarmið, byggðasjónarmið og sjónarmið um umhverfisvernd. Þá hafa Samtök ferðaþjónustunnar lýst sárum vonbrigðum með að vegarkaflinn hafi ekki fengið brautargengi í síðustu samgönguáætlun og bent á mikilvægi þess að vegasamgöngur milli landshluta verði bættar, ekki síst vegna stóraukins ferðamannastraums sl. ára. Það verður að teljast fullkannað að samgöngubætur hafa jákvæð áhrif á öryggi, nærsamfélag og efnahag.
    Mikilvægt er að allir fletir málsins verði greindir í þeirri undirbúningsvinnu sem tillagan gerir ráð fyrir að fari fram, þ.m.t. hvernig best væri að standa að fjármögnun verksins og hvort skynsamlegt væri að líta til fyrirkomulagsins við gerð Hvalfjarðarganga með aðkomu Spalar hf. sem fyrirmyndar í þeim efnum.
    Á undanförnum árum hefur talsvert verið fjallað um möguleika á því að stytta leiðir milli landshluta með bættum hálendisvegum, m.a. með það að markmiði að tengja betur saman fjölmennustu byggðir landsins. Töluverð rannsóknarvinna hefur verið unnin vegna nokkurra af þeim leiðum sem liggja um hálendið, svo sem um Sprengisand, Fjallabak og Kjöl, og til er mikið af gögnum um þær. Fornir hálendisvegir hafa þó verið í niðurníðslu undanfarin ár og flokkast frekar sem slóðar en vegir. Kjalvegur hefur frá landnámsöld verið mikilvæg samgönguæð milli norður- og suðurhluta landsins og þrátt fyrir mikla uppbyggingu á hringveginum síðustu áratugi er mikilvægi vegarins enn mikið. Þrátt fyrir það hefur veginum ekki verið haldið við eins og nauðsynlegt er. Hér er lagt til að vegurinn yfir Kjöl verði endurnýjaður og lagður bundnu slitlagi þannig að unnt verði að halda honum opnum mestan hluta ársins og að verkefnið verði unnið sem einkaframkvæmd.


Ferðaþjónusta.

    Á síðastliðnum tíu árum hefur vöxtur ferðaþjónustunnar verið gríðarlegur og erlendum ferðamönnum sem sækja Ísland heim fjölgað úr hálfri milljón í rúmlega 2,2 milljónir. Mikilvægi atvinnugreinarinnar í íslensku efnahags- og atvinnulífi hefur á sama tíma aukist mikið. Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu námu um 42% af heildargjaldeyristekjum Íslendinga á síðasta ári.

Mynd 1. Þróun ferðamannafjölda 2008–2017.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Ljóst er að sívaxandi fjöldi ferðamanna reynir á innviði samfélagsins og því er mikilvægt að huga að fjárfestingum á því sviði. Ferðaþjónustan er orðin lykilgrein í atvinnumálum landsmanna. Hefur ferðamönnum yfir vetrartímann jafnframt fjölgað mikið og nú er svo komið að ferðamannatíminn nær yfir allt árið. Þannig hefur tekist að jafna árstíðabundnar sveiflur en enn er mikið verk óunnið. Kannanir hafa sýnt að stór hluti ferðamanna ferðast aðeins um Suðurland og suðvesturhorn landsins þrátt fyrir að náttúruperlur og vænlega ferðamannastaði sé að finna hringinn í kringum landið. Með heilsársvegi yfir Kjöl er mögulegt að stytta til muna leiðina landshorna á milli og auðvelda þannig ferðir til Norðurlands og yfir hálendið og opna fyrir möguleika á þróun nýrra ferðamannaleiða. Þá veitir það fleirum tækifæri til að upplifa hálendið og náttúru þess og víðerni sem eru einstök á evrópskan mælikvarða og ljóst er að hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem koma til landsins. Þá opnast einnig möguleikar á styttri hringferðum.
    Fjölgun ferðamanna og fjölgun bílaleigubíla á undanförnum árum ýtir undir mikilvægi þess að ráðast í uppbyggingu Kjalvegar. Bílaleigubílarnir gegna mikilvægu hlutverki í dreifingu ferðamanna um landið. Flutningsmenn þessarar tillögu telja að með því að bæta samgöngutengingar á milli Suður- og Norðurlands um Kjöl megi reikna með meiri nýtingu margs konar innviða sem fjárfest hefur verið í og að svæðin báðum megin styrkist.


Mynd 2. Þróun í fjölda skráðra bílaleigubíla 2008–2017.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Akstur erlendra ferðamanna á bílaleigubílum er talinn vera um 20% af eknum kílómetrum og má reikna með að hlutfallið fari vaxandi. Reikna má með að stærsti hluti aksturs um nýjan Kjalveg tengdist ferðalögum erlendra ferðamanna, annaðhvort með bílaleigubílum eða hópferðabílum.

Byggðastefna.
    Betri vegir um hálendið mundu ekki einungis auka ferðaþjónustu á einstökum stöðum og styrkja þannig hverja byggð fyrir sig heldur gæfist með betri hálendisvegum tækifæri til að styrkja landsbyggðina í heild með aukinni samvinnu og samkeppni milli einstakra byggðarlaga. Nýjar og góðar samgönguleiðir mundu styrkja landbúnaðarhéruð hvarvetna og heilsársvegur yfir Kjöl mundi tengja saman landbúnaðarsvæði á Suður- og Norðurlandi. Hringvegurinn yrði þá ekki eina greiðfæra leiðin heldur opnuðust fleiri möguleikar með styttri hringleiðum sem gætu hentað fleirum, bæði einstaklingum og ferðaþjónustuaðilum og aðilum í öðrum atvinnurekstri. Norðvesturland hefur farið nokkuð halloka í atvinnu- og byggðamálum síðustu áratuga og þar hefur íbúum og störfum fækkað jafnt og þétt. Heilsársvegur yfir Kjöl mundi styrkja atvinnulíf í landshlutanum auk þess sem ferðaþjónusta getur skipt grundvallarmáli þegar kemur að því að viðhalda lágmarksþjónustu í litlum byggðarlögum þar sem íbúafjöldi stendur ekki undir henni einn og sér.

Aukið öryggi og umhverfismál.
    
Nýr og bættur vegur yfir Kjöl mundi bæta umferðaröryggi á hálendinu og minnka líkur á slysum. Núverandi ástand Kjalvegar er óviðunandi og vegurinn hættulegur yfirferðar og veldur miklu sliti á þeim bifreiðum sem um hann aka. Þá má ætla að betri samgöngur um hálendið dragi úr álagi og viðhaldsþörf annars staðar í samgöngukerfinu. Lögregla og björgunarsveitir ættu greiðari leið upp á hálendi til að fylgjast með og vakta aukna umferð um það og heilsársvegur um Kjöl mundi nýtast sem neyðartenging milli Norðurlands og Suðurlands. Endurbætur á Kjalvegi mundu einnig styrkja náttúruvernd á hálendinu. Utanvegaakstur á hálendinu er viðvarandi vandamál sem ógnar náttúrunni víða og nauðsynlegt er að sporna við. Bent hefur verið á að lélegir vegir á hálendinu og margir óljósir slóðar kunni að ýta undir utanvegaakstur og því sé betra að hafa vel byggða vegi yfir hálendið svo betur sé hægt að stýra umferðinni og halda henni á vegum og minnka þannig rask á náttúrunni. Mikilvægt er einnig að vegurinn falli vel að umhverfinu og sé ekki áberandi eða byggður hátt upp úr landslaginu sem hann liggur um.
    Ljóst er að erfitt er að halda Kjalvegi opnum allt árið um kring og sérstaklega í núverandi ástandi en með betri vegi væri hægt að lengja það tímabil sem hægt er að aka upp á hálendið, sérstaklega fyrir þá sem ferðast á fólksbílum. Þá sjá flutningsmenn tillögunnar kost við það að tengja há- og láglendi saman á einum stað. Kosturinn felst í því að þegar óráðlegt er að ferðast um hálendi Íslands yfir harðasta tíma vetrar er auðvelt fyrir Vegagerðina, björgunarsveitir eða rekstraraðila vegarins að loka aðgangi og koma í veg fyrir að einstaklingar fari sér að voða.

Einkaframkvæmd.
    Í tillögu þessari felst að endurgerð Kjalvegar verði einkaframkvæmd. Í stuttu máli felst í einkaframkvæmd að einkaaðili taki að sér fjármögnun, framkvæmd og rekstur verkefnisins í umboði hins opinbera.
    Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi undir sér að öllu leyti með notendagjöldum með svipuðum hætti og staðið hefur verið að málum varðandi Hvalfjarðargöng, þar sem gjöldin hafa staðið undir fjármögnun, rekstri og viðhaldi ganganna. Aðkoma hins opinbera að slíkum verkefnum felst einkum í að heimila framkvæmdina og setja um hana reglur.
    Hér á landi hefur ekki verið ráðist í margar einkaframkvæmdir í vegakerfinu en Hvalfjarðargöng eru skýrt dæmi um að slíkt getur heppnast vel. Veggjöld hafa að öllu leyti staðið undir fjármögnun, rekstri og viðhaldi ganganna og í september afhendir Spölur hf. ríkinu göngin eins og um var samið. Reynslan af þessu viðamikla verkefni, sem Hvalfjarðargöng svo sannarlega eru, nýtist án efa í framtíðarverkefni þar sem farin verður svipuð leið.

Undirbúningsvinna og stuðningur.
    Mikil rannsóknarvinna hefur verið unnin af hálfu einkaaðila og Vegagerðarinnar um áhrif bættra samgangna um hálendið. Snertir sú vinna samfélagsleg áhrif og áhrif á mismunandi byggðir en einnig hafa verið gerðar athuganir á kostnaði, umferðarspá og hagkvæmni. Þær rannsóknir nýtast við frekari athuganir og undirbúningsvinnu. Þá hefur Vegagerðin gert úttektir á veðurfari hálendisins með staðsetningu vega í huga. Útlit er fyrir að stuðningur við uppbyggingu hálendisvega sé mikill, sérstaklega sunnanlands og norðan, og hann aukist samhliða fjölgun ferðamanna sem koma til landsins. Liggur því beint við að horft verði til Kjalvegar í því samhengi.