Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.
Þingskjal 121 — 121. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um þyrlupall á Heimaey.
Flm.: Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason, Smári McCarthy, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Magnússon, Karl Gauti Hjaltason.
Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera nú þegar ráðstafanir til að Isavia geti hannað og staðsett þyrlupall á Heimaey til að auka enn frekar öryggi í sjúkra- og neyðarflugi til Vestmannaeyja. Verkinu verði lokið ekki síðar en árið 2020.
Greinargerð.
Í Vestmannaeyjum búa rúmlega 4.200 manns við áhættusækið atvinnulíf og skerta sjúkrahúsþjónustu í alvarlegustu tilfellum. Fæðingarþjónusta er rekin með ljósmæðravakt, en ekki er rekin sérfræðiþjónusta lækna allan sólahringinn. Sjúkraflug er því mikilvægur öryggisventill sem alls ekki má bregðast þegar neyðarástand skapast í Eyjum. Fyrirséð er að þyrla verður áfram mikilvægt öryggistæki fyrir sjúkraflug frá Eyjum þegar flugvöllurinn er lokaður, Herjólfur ekki í siglingum og Landeyjahöfn jafnvel lokuð. Það er því mikilvægt að búa þannig að þyrlufluginu að besta mögulega aðstaða verði gerð sem fyrst og nýtist þegar flugvöllurinn í Eyjum lokast vegna veðurfarsaðstæðna sem enginn ræður við eins og gerist iðulega fyrirvaralítið í Eyjum.