Ferill 143. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 143 — 143. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um reynslulausn og samfélagsþjónustu.
Frá Helga Hrafni Gunnarssyni og Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvernig er mati hagað á því hver telst „síbrotamaður“ skv. 6. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, og 2. mgr. 60. gr. sömu laga?
2. Hvernig metur Fangelsismálastofnun hæfi aðila til að taka við fanga í samfélagsþjónustu með tilliti til tengsla aðilans við fangann?
3. Telur ráðherra Fangelsismálastofnun heimilt að veita fanga reynslulausn á grundvelli 4. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga þótt hann uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. sömu greinar?
Skriflegt svar óskast.