Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 186  —  183. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992, með síðari breytingum (skýstrókar).

Flm.: Karl Gauti Hjaltason, Ari Trausti Guðmundsson, Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Ísleifsson, Vilhjálmur Árnason.


1. gr.

    Á eftir orðinu „skriðufalla“ í 4. gr. laganna kemur: skýstróka.

2. gr.

    Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Stjórn Náttúruhamfaratryggingar Íslands skal bæta tjón sem varð af völdum skýstróka sem gengu yfir Álftaver í Skaftárhreppi í ágúst 2018.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpinu er lagt til að Náttúruhamfaratrygging Íslands skuli einnig vátryggja gegn tjóni vegna skýstróka. Í 4. gr. laganna er að finna tæmandi talningu á þeim náttúruhamförum sem Náttúruhamfaratrygging Íslands nær yfir. Tryggingin bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
    Stutt er síðan kraftmiklir skýstrókar ollu miklu tjóni hérlendis. Skýstrókarnir voru staðbundnir og fóru yfir bæinn Norðurhjáleigu í Álftaveri í Skaftárhreppi 24. ágúst síðastliðinn. Nærliggjandi bæir fóru ekki illa út úr hvassviðrinu en í Norðurhjáleigu rifnuðu þök af húsum, stór jeppi með kerru þeyttist út í skurð, girðingar lögðust á hliðina og brak og járnplötur feyktust allt að kílómetra frá bænum. Mikil mildi var að íbúar voru ekki heima þegar strókarnir gengu yfir bæinn.
    Þekkt er að skýstrókar myndist hér á landi en það er afar sjaldgæft að þeir séu eins kraftmiklir og valdi eins mikilli eyðileggingu og raunin varð í Norðurhjáleigu.
    Skýstrókar eru fyrirsjáanlegt veðurfyrirbrigði með réttum tækjum og tólum. Þannig er spáð fyrir um slíka stróka í Bandaríkjunum á svæðum þar sem þeir eru algengir. Hér á landi er hins vegar ekki tækjabúnaður til að spá fyrir um skýstróka. Veðurstofan hefur reynt að fjölga veðursjám um landið. Hægt er að sjá skýstróka á slíkum sjám en að sögn veðurfræðings yrði eftir sem áður ólíklegt að hægt væri að spá fyrir um þá. Það teldist heppni ef strókur myndaðist í nágrenni við veðursjá sem sæi hann. Jafnvel þótt það gerðist væri viðvörunartíminn einungis á bilinu tíu til tuttugu mínútur. Ljóst er að fátt er hægt að gera á þeim tíma annað en að forða fólki af svæðinu. Þannig er með engu móti hægt að undirbúa sig fyrir slíkan atburð sem getur valdið stórkostlegri eyðileggingu og tjóni. Samkvæmt almennri skilgreiningu orðabókar á orðinu náttúruhamfarir er átt við hamfarir af völdum náttúruafla. Er þá jafnan átt við óviðráðanlega stóratburði í náttúrunni sem valda tjóni eða mannskaða en ljóst er að skýstrókar falla skýrlega undir þá skilgreiningu.
    Að mati flutningsmanna er brýnt að bregðast við og tryggja að tjón sem hlýst af slíkum náttúruhamförum verði bætt.
    Þar sem Náttúruhamfaratrygging Íslands tryggði með þessari breytingu gegn tjóni af völdum þessa afar sjaldgæfa veðurfyrirbrigðis hér á landi telja flutningsmenn rétt að bæta við lögin ákvæði til bráðabirgða sem mælir fyrir um skyldu stjórnar Náttúruhamfaratryggingar Íslands til að bæta það tjón sem varð á bænum Norðurhjáleigu í Álftaveri í Skaftárhreppi af völdum skýstrókanna 24. ágúst síðastliðinn.