Ferill 252. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 270  —  252. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um lánveitingu Seðlabanka Íslands til Kaupþings 6. október 2008.

Frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.


     1.      Hver tók ákvörðun um að Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi 500 millj. evra neyðarlán, tæplega 78 milljarða kr. á þáverandi gengi, hinn 6. október 2008?
     2.      Hvernig ráðstafaði Kaupþing þessum fjármunum?
     3.      Hverjar voru innheimtur Seðlabanka Íslands af þessu láni?


Skriflegt svar óskast.