Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 285 — 99. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um ráðgjöf og störf við tímabundin eða afmörkuð verkefni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra fengið til starfa, tímabundið eða á grundvelli verksamnings, sérfræðinga eða aðra aðila til að veita ráðgjöf, sinna sérverkefnum eða verkefnastjórnun í einstökum verkefnum frá því að núverandi ríkisstjórn tók til starfa? Ef svo er, hvaða aðilar eru það, hverjar hafa greiðslur til þeirra verið og hver er lýsing á verkefnum þeirra?
Svarið afmarkast við þá samninga sem gerðir hafa verið á tímabili sitjandi ráðherra ásamt öðrum verkefnum þar sem utanaðkomandi aðilar, sérfræðingar eða ráðgjafar eru fengnir til verksins. Undanskilið er það sem lýtur að rekstri ráðuneytis og starfsmannahaldi. Kostnaður vegna kaupa heilbrigðisráðherra á umræddri ráðgjöf eða þjónustu frá því núverandi ríkisstjórn tók til starfa 1. desember 2017 – 1. september 2018 er 1.453.483 kr. Að auki er sameiginlegur kostnaður heilbrigðisráðherra og félags- og jafnréttismálaráðherra á tímabilinu 2.060.783 kr. sem fellur undir velferðarráðuneytið.
Eftirtaldir aðilar unnu tilgreind verkefni fyrir ráðuneytið á tímabilinu:
| Nafn | Verkefni | Fjárhæð í kr. |
| Þýðingastofa JC ehf. | Þýðing á lögum, rafrettulögin | 58.955 |
| Nilsina Larsen Einarsdóttir | Hlutur ráðuneytisins í 5. og 6. skýrslu Íslands um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins | 197.500 |
| Utanríkisráðuneyti | Þýðing á bókun við rammasamning um tóbaksvarnir o.fl. | 672.600 |
| Scriptorium ehf. | Enskar þýðingar á fréttatilkynningum | 43.560 |
| Ríkiskaup | Ráðgjöf vegna innkaupa á bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu og ráðgjöf vegna lyfjaútboðsmála | 480.868 |
Eftirtaldir aðila unnu tilgreind verkefni fyrir ráðuneytið á tímabilinu sem fellur undir sameiginlegan kostnað velferðarráðuneytisins:
| Nafn | Verkefni | Fjárhæð í kr. |
| Brandenburg ehf. | Hlutur VEL í hönnun: Ásýnd STJR | 93.633 |
| Athygli ehf. | Vinna í fjarveru upplýsingafulltrúa velferðarráðuneytisins | 329.550 |
| Scriptorium ehf. | Enskar þýðingar á fréttatilkynningum | 22.400 |
| KSA ehf. | Ráðgjöf og endurskoðun á skipulagi VEL | 1.615.200 |