Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 286  —  114. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Olgu Margréti Cilia um þungunarrof.

     1.      Stendur til að fylgja eftir tillögum nefndar sem vann að heildarendurskoðun laga nr. 25/1975 sem komu fram í skýrslu til velferðarráðuneytisins í nóvember 2016? Ef svo er, hvenær telur ráðherra að frumvarp þess efnis verði lagt fram?
    Ráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um þungunarrof á yfirstandandi þingi og er við gerð þess höfð hliðsjón af skýrslu nefndar um heildarendurskoðun laga nr. 25/1975. Áætlað er að frumvarpið verði lagt fram í október.

     2.      Hversu mörgum einstaklingum synjaði úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir um að rjúfa þungun árið 2017?
    Engri beiðni um fóstureyðingu var synjað árið 2017.

     3.      Hversu mörgum einstaklingum var heimilað árið 2017 að rjúfa þungun eftir 16. viku meðgöngu?
    Þrettán einstaklingum var það heimilað árið 2017.

     4.      Hver var heildarfjöldi mála sem var vísað til úrskurðarnefndar um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir árið 2017?
    Þrettán málum var vísað til úrskurðarnefndarinnar árið 2017.

     5.      Hverjar eru helstu ástæður þess að úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir synjar einstaklingum um að rjúfa þungun?
    Í 2. mgr. 10. gr. laga nr. 25/1975 kemur fram að fóstureyðing sé leyfileg eftir 16 vikur séu miklar líkur á vansköpun, erfðagöllum eða sköddun fósturs. Öllum málum er varða fóstureyðingu eftir 16 vikur er vísað til úrskurðarnefndar um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir og fjallar nefndin um hvort skilyrði laganna séu uppfyllt. Komist nefndin að þeirri niðurstöðu að skilyrði laganna séu ekki uppfyllt er beiðni um fóstureyðingu synjað, en samkvæmt formanni úrskurðarnefndarinnar hefur í gegnum árin helsta ástæða synjunar verið þegar óskað hefur verið eftir fóstureyðingu vegna félagslegra ástæðna.