Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 287  —  265. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um mat á kostnaðaráhrifum laga um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.


    Hvaða upplýsingar lágu til grundvallar mati ráðuneytisins á kostnaðaráhrifum laga um jafna meðferð á vinnumarkaði varðandi þá þætti sem vísað er til í greinargerð með frumvarpi til laganna? Var t.d. kostnaður við eftirlit, ráðgjöf, fræðslu, upplýsingastarfsemi og rannsóknir metinn?


Skriflegt svar óskast.