Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 290  —  268. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fjárfestingarstefnu sjóða.

Frá Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur.


     1.      Hafa opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins virka samfélags- og jafnréttisstefnu í sinni fjárfestingarstefnu?
     2.      Gera opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins kröfu til þeirra sjóða sem sjá um eignastýringu fyrir þá að ákveðinn hluti starfsmanna sem starfa beint við fjárfestingar sé kvenkyns?
     3.      Gera opinberir íslenskir lífeyrissjóðir og fjárfestingarsjóðir á vegum ríkisins kröfu til þeirra sjóða sem þeir fjárfesta í að þeir séu með virka samfélags- og jafnréttisstefnu í sínum fjárfestingum, þegar kemur að því að fjárfesta í fyrirtækjum þar sem konur eru meirihlutaeigendur eða framkvæmdastjórar?


Skriflegt svar óskast.