Ferill 60. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 291 — 60. mál.
Svar
félags- og jafnréttismálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um karla og jafnrétti.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið brugðist við þeim fimmtán tillögum sem fram komu í skýrslunni Karlar og jafnrétti: Skýrsla og tillögur um aukinn hlut karla í jafnréttismálum , sem velferðarráðherra var afhent í apríl árið 2013?
Ráðherra hefur ákveðið að skipa aðgerðahóp um verkefnið karla og jafnrétti í samræmi við verkefni nr. 18 í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2016–2019. Meginhlutverk aðgerðahópsins er annars vegar að beita sér fyrir aðgerðum stjórnvalda um að auka þátttöku drengja og karla í öllu starfi og stefnumótun á sviði jafnréttismála og hins vegar að vinna tillögur um hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af samfélagslegri stöðu karla. Aðgerðahópnum verður falið að taka mið af þeim tillögum sem fram komu í skýrslunni Karlar og jafnrétti: Skýrsla og tillögur um aukinn hlut karla í jafnréttismálum frá árinu 2013. Undirbúningur fyrir skipun aðgerðahópsins er í ferli og hefur hópurinn störf á næstunni.
Gert er ráð fyrir að aðgerðahópurinn verði skipaður fulltrúum frá heilbrigðissviði Háskólans á Akureyri, Félagi leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og velferðarráðuneytinu. Sérfræðingur Jafnréttisstofu mun starfa með aðgerðahópnum. Jafnréttisstofa hefur unnið verkefnislýsingu fyrir aðgerðahópinn.
Verkefnalýsing tekur, sem fyrr segir, mið af verkefni nr. 18 í þingsályktun um áætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum fyrir árin 2016–2019 og þeirri vinnu sem áður hefur verið unnin til að auka þátttöku karla í umræðu um jafnréttismál. Á undirbúningstíma verkefnisins hafa orðið miklar breytingar í kjölfar #MeToo-byltingarinnar. Jafnframt hefur verkefnið tafist. Því var talið nauðsynlegt að fækka verkefnum aðgerðahópsins og sníða að umræðu í samfélaginu um kynferðislega og kynbundna áreitni.
Viðfangsefnum aðgerðahópsins er skipt í fjóra meginþætti:
1. Vinna að heildstæðri aðgerðaáætlun stjórnvalda, m.a. á grundvelli tillagna nefndar um karla og jafnrétti frá 2013. Áætlunin fjalli sérstaklega um hvernig stefnumótun stjórnvalda á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af samfélagslegri stöðu karla og drengja og fjalli um aðgerðir er snúa að þátttöku karla og drengja á sviði jafnréttismála, fæðingarorlofstöku feðra, bættum möguleikum karla á samhæfingu fjölskyldu- og atvinnulífs sem og aðgerðum um uppbrot kynbundins náms- og starfsvals með tilliti til brottfalls karla úr námi á efri skólastigum.
2. Gera tillögur um mælingar á viðhorfum drengja og karla til helstu viðfangsefna jafnréttismála með hliðsjón af erlendum viðhorfskönnunum. Könnunin kanni sérstaklega viðhorf og notkun karla á heilbrigðisþjónustu og sömuleiðis hvort ákveðnir hópar karla fari á mis við þjónustuúrræði í heilbrigðismálum.
3. Gera tillögur um viðbrögð stjórnvalda við #MeToo-byltingunni.
4. Gera tillögur um aðgerðir til að efla sálfræði- og geðheilbrigðisþjónustu við þolendur og gerendur kynferðisofbeldis.
Aðgerðahópurinn skal ljúka störfum og skila skýrslu með tillögum haustið 2019 til félags- og jafnréttismálaráðherra og ráðherranefndar um jafnréttismál þar sem m.a. skal gera grein fyrir stöðu þekkingar um karla og jafnrétti og setja fram tillögur að rannsóknum og aðgerðum. Horft skal til fyrirmynda og stefnumótunar um karla og jafnrétti á Norðurlöndum.
Á vegum stjórnvalda og á vettvangi norræns samstarfs er unnið jöfnum höndum að verkefnum um karla og jafnrétti. Heimilisfriður er íslenskt meðferðarúrræði, sem er fyrir einstaklinga sem beita ofbeldi í nánum samböndum, samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið og í samræmi við verkefni í framkvæmdaáætlun stjórnvalda í jafnréttismálum 2016–2019. Verkefnið var áður starfrækt undir nafninu Karlar til ábyrgðar.
Heimilisfriður býður gerendum, körlum og konum, upp á meðferð með einstaklingsviðtölum og hópmeðferð. Í meðferðinni er miðað að því að gerendur viðurkenni ábyrgð á hegðun sinni og vinni að breytingum. Lögð er áhersla á að viðkomandi þiggi aðstoðina af fúsum og frjálsum vilja og sjái sjálfur um að panta sér viðtal. Undantekningar frá þessari meginreglu eru t.d. þegar barnaverndarnefndir, félagsþjónusta eða lögregla vísa málum til Heimilisfriðar. Heimilisfriður býður einnig upp á þjónustu á Norðurlandi.
Á vegum utanríkisráðuneytisins hafa verið haldnar rakarastofuráðstefnur hjá alþjóðastofnunum, sem Ísland er aðili að, í þeim tilgangi að fá karla til að axla ábyrgð á kynjajafnrétti. Íslensk stjórnvöld eru í samstarfi við landsnefnd UN Women um að hvetja karlmenn til að skrá sig sem stuðningsmenn HeForShe-átaksins. Forseti Íslands tók nýverið við kyndlinum sem fulltrúi verkefnisins á alþjóðavísu en alls eru tíu þjóðarleiðtogar, tíu forsvarsmenn alþjóðlegra fyrirtækja og tíu háskólarektorar forsvarsmenn verkefnisins. Tæplega 15.000 íslenskir karlar hafa skráð sig til þátttöku, þ.e. 1/ 8 íslenskra karla.
Rakarastofuráðstefnur hafa verið haldnar í Vín í Austurríki á vettvangi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), í Reykjavík á vegum Eystrasaltsráðsins undir formennsku Íslands og í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og Genf. Þá var haldin ráðstefna í Kaupmannahöfn á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í október 2017 og forseti Alþingis stóð fyrir rakarastofuráðstefnu í samvinnu við utanríkisráðuneytið og landsnefnd UN Women í febrúar 2018, og nú síðast 3. október hjá OECD í höfuðstöðvum samtakanna í París með þátttöku utanríkisráðherra. Áður höfðu slíkar ráðstefnur verið haldnar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York, hjá öllum alþjóðastofnununum í Genf og Atlantshafsbandalaginu í Brussel. Alls hafa nærri 2.000 manns sótt ráðstefnurnar frá upphafi. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, árið 2017 afhenti forsætisráðherra framkvæmdastýru UN Women verkfærakistu sem gerir öðrum kleift að skipuleggja rakarastofuráðstefnur og var hún samtímis opnuð á vefsíðu HeForShe-átaksins. Verkfærakistan var þróuð í samvinnu við landsnefnd UN Women á Íslandi. Utanríkisþjónustan vinnur einnig með fjölda erlendra félagasamtaka, m.a. við framkvæmd rakarastofuráðstefna, og styrkti auk þess og kynnti alþjóðlega skýrslu ProMundo um stöðu feðra.