Ferill 175. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 297 — 175. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um bílaleigubifreiðar.
1. Hvaða reglur gilda um skráningu bílaleigubifreiða?
Um skráningu bílaleigubifreiða gilda lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015. Í 1. mgr. 6. gr. laganna segir að ökutækjaleigu sé óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé skráð hjá Samgöngustofu sem ökutæki í notkunarflokki ökutækjaleigu. Jafnframt segir í 1. málsl. 4. mgr. 9. gr. laganna að einkaleiga skuli tryggja að skráningarskylt ökutæki sem leigan hefur á skrá sé skráð sem ökutæki í notkunarflokki ökutækjaleigu hjá Samgöngustofu. Í 4. mgr. 11. gr. reglugerðar um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 840/2015, kemur á sama hátt fram að bílaleiga skuli tryggja, séu eigendur bifreiða aðrir en leigan sjálf, að viðkomandi ökutæki verði skráð sem ökutæki í notkunarflokki ökutækjaleiga hjá Samgöngustofu ásamt því að tryggja að með því taki ábyrgðartryggingar á ökutækinu breytingum í samræmi við reglur þar um.
Af því leiðir að öll ökutæki sem leigð eru út í atvinnuskyni skal skrá í notkunarflokkinn ökutækjaleigu. Hafi bifreiðaumboð heimild frá Samgöngustofu til ökutækjaleigu samkvæmt lögum nr. 65/2015 ber leigunni, samkvæmt ákvæðum laganna, að skrá ökutæki til útleigu í notkunarflokkinn ökutækjaleigu, hvort sem leigan er til skemmri tíma eða lengri.
2. Hvernig tryggja skráningarreglur að neytendur fái við kaup notaðra bílaleigubifreiða upplýsingar um að þær hafi áður verið notaðar til útleigu?
Þrátt fyrir skráningarskyldu bílaleigubifreiða, tryggja skráningarreglur ekki að neytendur fái við kaup notaðra bílaleigubifreiða upplýsingar um að þær hafi áður verið skráðar til útleigu og notaðar sem slíkar. Það er því á ábyrgð kaupanda að kynna sér ástand og sögu ökutækisins, þ.m.t. notkunarflokk skráningar þess. Samgöngustofa hefur sett í form fyrir kaupsamninga ábendingu þess efnis að kaupendur óski eftir ferilskrá ökutækis. Í ferilskrá ökutækis kemur fram eigendaferill, tjónaferill og notkunarferill sem inniheldur upplýsingar um skráningu í notkunarflokka. Þannig geta kaupendur kynnt sér feril ökutækis og meðal annars gengið úr skugga um að ökutækið sé, eða hafi verið, skráð í notkunarflokkinn ökutækjaleigu. Kaupsamningi, ásamt ferilskrá ökutækis, þarf ekki að skila til Samgöngustofu við eigendaskipti, heldur er um að ræða samning sem kaupandi og seljandi gera sín á milli.
3. Hvaða reglur gilda þegar bifreiðaumboð leigir út t.d. uppítökubifreið til lengri eða skemmri tíma á bílaleigu eða sem bílaleigubifreið? Þarf að skrá hana sem bílaleigubifreið?
Sjá svör við 1. og 2. lið fyrirspurnarinnar.
4. Með hvaða hætti geta kaupendur notaðra einkabifreiða áttað sig á því að bifreið hafi verið notuð tímabundið eða varanlega sem bílaleigubifreið?
Gegn gjaldi sem nemur 400 kr. er aðila tækt að fá ferilskrá ökutækis úr ökutækjaskrá Samgöngustofu póstlagða eða senda á rafrænu formi. Að öðrum kosti getur kaupandi hringt eða komið við á starfstöð Samgöngustofu eða á skoðunarstöð og fengið upplýsingar úr ökutækjaskrá sér að kostnaðarlausu. Þar að auki er hægt að snúa sér til annarra sem hafa aðgang að ökutækjaskrá og fá upplýsingar, en þá gegn gjaldi.
5. Hyggst ráðherra setja reglur sem tryggja að við kaup á bifreiðum fái neytendur upplýsingar um hvort þær hafi verið notaðar sem bílaleigubifreiðar í deilihagkerfinu?
Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015 , eru á forræði ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
6. Hefur ráðherra í hyggju að tryggja betur neytendavernd og yfirsýn neytenda yfir nýtingarsögu notaðra bifreiða þannig að ekki fari á milli mála hvort þær hafi verið notaðar í atvinnurekstri?
Eins og að framan greinir geta kaupendur fengið ferilskrá bifreiðar sem þeir hafa hug á að kaupa. Það er á ábyrgð þeirra að óska eftir því. Að öðru leyti er bent á að lögin eru á forræði ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.