Ferill 143. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 303  —  143. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni og Birni Leví Gunnarssyni um reynslulausn og samfélagsþjónustu.


    Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá Fangelsismálastofnun og er svarið unnið í samráði við stofnunina.

     1.      Hvernig er mati hagað á því hver telst „síbrotamaður“ skv. 6. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, og 2. mgr. 60. gr. sömu laga?
    Við mat á því hvort fangi telst síbrotamaður í skilningi 6. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga hefur áralöng hefð verið fyrir því að líta til þess hversu oft hann hefur afplánað óskilorðsbundna refsingu í fangelsi (afplánun með samfélagsþjónustu telst hér ekki með). Hefur Fangelsismálastofnun miðað við að hafi fangi afplánað refsingu í fangelsi sjö sinnum eða oftar sé hann talinn síbrotamaður í skilningi ákvæðisins. Eins og fram kemur í 6. mgr. 80. gr. er þó heimilt, ef sérstakar ástæður mæla með því, að veita síbrotamanni reynslulausn. Við mat á sérstökum ástæðum má líta til þess hvort dómþoli hafi tekið sig á og sé metinn hæfur til reynslulausnar þótt hann teljist síbrotamaður í skilningi ákvæðisins.

     2.      Hvernig metur Fangelsismálastofnun hæfi aðila til að taka við fanga í samfélagsþjónustu með tilliti til tengsla aðilans við fangann?
    Fangelsismálastofnun hefur gert samkomulag við fjölmarga vinnustaði sem taka við samfélagsþjónum. Um er að ræða vinnustaði eins og íþróttafélög, kirkjur, sambýli, vinnustaði á vegum Samhjálpar (svo sem kaffistofa Samhjálpar), fataflokkun Rauða krossins o.fl. Samkvæmt 39. gr. laga um fullnustu refsinga ákveður Fangelsismálastofnun hvaða samfélagsþjónustu dómþoli sinni í hverju tilviki. Samkvæmt 38. gr. laganna skal meta hvort hann teljist hæfur til að gegna samfélagsþjónustu og þ.m.t. hvort líklegt sé að hann geti innt samfélagsþjónustuna af hendi. Í því skyni fer fram athugun á persónulegum högum hans. Í kjölfarið er síðan reynt að finna vinnustað sem hæfir honum best. Ef viðkomandi býr yfir tiltekinni færni er reynt að finna starf fyrir hann þar sem hann getur nýtt þá færni, t.d. ef um væri að ræða smið þá yrði reynt að finna vinnustað sem þyrfti á slíkum starfsmanni að halda. Einstaka sinnum óskar viðkomandi dómþoli sjálfur eftir því að vinna á tilteknum vinnustað, t.d. vegna tengsla við vinnuveitanda en Fangelsismálastofnun hefur ekki samþykkt slíkt. Vinnustaður er ekki samþykktur sem samfélagsþjónusta ef tengsl eru milli vinnustaðar og dómþola. Aðeins þeir vinnustaðir sem Fangelsismálastofnun hefur gert samning við koma til greina fyrir dómþola.

     3.      Telur ráðherra Fangelsismálastofnun heimilt að veita fanga reynslulausn á grundvelli 4. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga þótt hann uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. sömu greinar?
    Í 4. mgr. 80. gr. er kveðið á um heimild til að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn, enda hafi fangi verið 21 árs eða yngri þegar hann framdi afbrot það sem hann situr í fangelsi fyrir, hegðun hans og framkoma verið með ágætum og hann þegið viðeigandi meðferð í afplánun og tekist á við vímuefnavanda sinn, hafi hann verið til staðar. Að mati Fangelsismálastofnunar á þetta ákvæði við um unga fanga, óháð eðli þess brots er þeir afplána refsingu fyrir. Hefur stofnunin því litið svo á að uppfylli fangi þessi skilyrði, þ.e. hafi verið 21 árs eða yngri þegar afbrotið var framið og sýnt af sér fyrirmyndarhegðun í afplánun, sé heimilt að veita honum reynslulausn eftir þriðjung refsitímans þótt hann afpláni refsingu fyrir alvarlegt brot skv. 2. mgr. 80. gr. Ráðherra gerir ekki athugasemd við þessa lagatúlkun Fangelsismálastofnunar.