Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 368  —  202. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um fulltrúa af landsbyggðinni í stjórnum, nefndum og ráðum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig er skipulagi og stuðningi háttað við einstaklinga sem hafa verið tilnefndir af þingmönnum og skipaðir í stjórnir, nefndir og ráð á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins? Hvernig er farið með kostnað við flug, akstur, gistingu og mat og annan kostnað sem hlýst af fundafyrirkomulaginu? Væri mögulegt að viðhafa þá reglu að tímasetja fundi þannig að fulltrúar af landsbyggðinni gætu nýtt sér innanlandsflug samdægurs?

    Hjá utanríkisráðuneytinu er almennt greiddur ferðakostnaður og annar kostnaður þeirra fulltrúa sem hafa verið skipaðir í nefndir eða starfshópa á þess vegum. Greitt er fyrir flug, bílaleigubíl eða aksturskostnað þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Ráðuneytið bókar flug og bílaleigubíla. Annar kostnaður, svo sem gisting, matur og leigubílar, er greiddur samkvæmt reikningum og akstur samkvæmt akstursdagbók.
    Formenn stjórna, nefnda og ráða ákveða fundartíma í samráði við aðra meðlimi og ber að gæta að hagkvæmni við þá ákvörðun.
    
    Alls fór ein vinnustund í það að taka þetta svar saman.