Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 383  —  201. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um fulltrúa af landsbyggðinni í stjórnum, nefndum og ráðum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig er skipulagi og stuðningi háttað við einstaklinga sem hafa verið tilnefndir af þingmönnum og skipaðir í stjórnir, nefndir og ráð á vegum ráðuneytisins og búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins? Hvernig er farið með kostnað við flug, akstur, gistingu og mat og annan kostnað sem hlýst af fundafyrirkomulaginu? Væri mögulegt að viðhafa þá reglu að tímasetja fundi þannig að fulltrúar af landsbyggðinni gætu nýtt sér innanlandsflug samdægurs?

    Við skipan eða tilnefningu einstaklinga í nefndir eða ráð á vegum ráðuneytisins er almennt farið eftir þeirri reglu að ferðakostnaður sé greiddur. Greitt er fyrir flug, bílaleigubíla eða akstur þeirra sem búa á landsbyggðinni. Ráðuneytið sér þá um að bóka og greiða flug og bílaleigubíla en annar kostnaður er greiddur samkvæmt reikningi eða akstursdagbók.
    Hvað varðar stjórnir stofnana er heyra undir málaflokka ráðuneytisins þá annast viðkomandi stofnun umsýslu og greiðslur vegna kostnaðar við fundarsetu eða ferðalög.