Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 392  —  329. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um viðurkenningu á þjóðarmorði á Armenum.


Flm.: Margrét Tryggvadóttir, Helga Vala Helgadóttir, Guðjón S. Brjánsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Steindór Valdimarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Smári McCarthy, Halldóra Mogensen.


    Alþingi ályktar að það viðurkenni þjóðarmorð á Armenum árin 1915–17 og virði minningu fórnarlamba þessa glæps gegn mannkyni.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður flutt á 140. löggjafarþingi (730. mál) og 141. löggjafarþingi (187. mál). Þingsályktunartillögur með sama markmið voru einnig fluttar á 144. og 145. löggjafarþingi.
    Þjóðarmorð telst til alþjóðaglæpa og er kerfisbundin útrýming þjóðar eða þjóðarbrots. Það er skilgreint sem refsiverður verknaður, framinn í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúarflokki, með því að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi, skaða þá líkamlega eða andlega, þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að eyðingu hópsins eða hluta hans, beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum eða flytja börn með valdi úr hópnum. Árið 1948 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að fordæma skyldi þjóðarmorð og refsa þeim sem það fremja.
    Undir lok 19. aldar stóð hið fyrrum glæsta Ottómanaveldi höllum fæti. Armenar innan þess höfðu lengi þráð sjálfsstjórn og margir töldu að þeir gætu sóst eftir sjálfstæði eftir því sem veldi Ottómana veiktist frekar. Árið 1894 gerðu Armenar uppreisn gegn Tyrkjum sem barin var niður af mikilli hörku og í kjölfarið varð útskúfun hinna kristnu Armena að meðvitaðri pólitískri stefnu. Á árunum 1894–1897 voru tugþúsundir Armena teknar af lífi vegna þjóðernis síns og trúarskoðana. Tölum ber ekki saman; hinar tyrknesku segja að um 20–30 þúsund manns hafi látist en hinar armensku að nær 300 þúsund manns hafi týnt lífi. Þetta var þó aðeins forleikurinn.
    Ungtyrkir náðu völdum árið 1908 með stuðningi Armena enda börðust þeir gegn Tyrkjasoldáni og fyrir breyttum stjórnarháttum. Fljótlega klofnaði hópurinn þó og sá hluti sem vildi að Ottómanaveldið yrði aðeins fyrir Tyrki og múslima, CUP, náði völdum. Útrýma skyldi minnihlutahópum sem stæðu í vegi fyrir altyrknesku ríki. Í fyrri heimsstyrjöldinni gafst færi til aðgerða sem miðuðu að því að fækka þeim í ríkinu.
    Opinberlega byggðust aðgerðirnar á brottflutningi hinna óæskilegu til arabahéraðanna, ekki síst Armena sem ekki voru tilbúnir að snúa baki við trú sinni og menningu, en hið raunverulega markmið var að drepa sem flesta. Aðgerðirnar fólu m.a. í sér pyntingar og aftökur, auk þess sem fólkið var rekið fótgangandi langar vegalengdir, jafnvel um þúsund kílómetra, með þeim afleiðingum að margir létust eða hlutu örkuml. Algengt var að aldraðir og veikir væru drepnir á leiðinni því að þeir hægðu á hópunum og líkin lágu meðfram vegum Anatólíu mánuðum saman. Þeim sem lifðu af var komið fyrir í stórum útrýmingarbúðum – fáir sluppu þaðan lifandi. Fólk var einnig skilið eftir matar- og vatnslaust í eyðimörkinni. Ekki er vitað með vissu hve margir týndu lífi en talið er að tala þeirra liggi á bilinu 600.000–1.500.000 manna.
    Þrátt fyrir að þessir atburðir uppfylli skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 á þjóðarmorði og hafi verið kallaðir fyrsta þjóðarmorð 20. aldar hefur það reynst Armenum erfitt að öðlast viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á þeim sem slíkum. Vegur þar þyngst að Tyrkir hafa ekki viðurkennt atburðina sem þjóðarmorð, enn er viðvarandi ágreiningur milli Tyrkja og Armena og auk þess hafa margar þjóðir ekki viljað styggja Tyrki. Þá hafa atburðirnir fallið í skuggann af þjóðarmorði nasista á gyðingum. Eigi að síður hafa tæplega 30 þjóðir samþykkt ályktanir þar sem viðurkennt er að þjóðarmorðið á Armenum hafi átt sér stað, og sama gildir um 48 af 50 ríkjum Bandaríkjanna, Evrópuþingið og um Evrópuráðið. Þá hefur atburðunum verið lýst sem þjóðarmorði í skýrslu Sameinuðu þjóðanna.
    Hinn 22. ágúst 1939 hélt Adolf Hitler ræðu fyrir herforingja sína áður en hann réðst inn í Pólland. Þar gaf hann í skyn að þeir sem frömdu þjóðarmorðið á Armenum hefðu ekki verið dregnir til ábyrgðar – alþjóðasamfélagið hefði látið það óátalið. Þar með gat hann réttlætt þann hrylling sem hann hugðist hrinda í framkvæmd á næstu árum.
    Ákaflega mikilvægt er að heimsbyggðin viðurkenni þau voðaverk sem framin voru á armensku þjóðinni sem þjóðarmorð. Þótt langt sé um liðið var þetta glæpur gegn mannkyni og þar með gegn okkur öllum. Þau voðaverk sem framin verða við allt hernaðarbrölt heimsins í nútíð og framtíð byggjast á því sem áður hefur verið gert. Löngu tímabært er að íslensk stjórnvöld viðurkenni þjóðarmorð á Armenum árin 1915–17 og virði minningu fórnarlamba þessa glæps gegn mannkyni.

Viðauki:
    Eftirfarandi stofnanir eru meðal þeirra sem þegar hafa viðurkennt þjóðarmorð á Armenum:
     *      2. júlí 1985, skýrsla undirnefndar Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn mismunun og um verndun minnihlutahópa þar sem fjöldamorðunum á Armenum er lýst sem þjóðarmorði.
     *      18. júní 1987, Evrópuþingið.
     *      24. apríl 1998, Evrópuráðsþingið.
     *      19. nóvember 2007, sameiginleg þingmannanefnd Mercosur, viðskiptabandalags Suður-Ameríku.

    Þjóðríki sem þegar hafa viðurkennt þjóðarmorðið á Armenum eru þessi:
     *      20. apríl 1965, Úrúgvæ.
     *      29. apríl 1982, Kýpur.
     *      14. apríl 1995, Rússland.
     *      25. apríl 1996, Grikkland.
     *      26. mars 1998, Belgía.
     *      11. maí 2000, Líbanon.
     *      16. nóvember 2000, Ítalía.
     *      29. janúar 2001, Frakkland.
     *      13. júní 2002, Kanada.
     *      16. desember 2003, Sviss.
     *      31. mars 2004, Argentína.
     *      30. nóvember 2004, Slóvakía.
     *      21. desember 2004, Holland.
     *      19. apríl 2005, Pólland.
     *      14. júlí 2005, Venesúela.
     *      15. desember 2005, Litháen.
     *      5. júní 2007, Síle.
     *      11. mars 2010, Svíþjóð.
     *      27. nóvember 2014, Bólivía.
     *      15. apríl 2015, Lúxemborg.
     *      24. apríl 2015, Austurríki.
     *      22. apríl 2015, Sýrland.
     *      24. apríl 2015, Búlgaría.
     *      21. maí 2015, Brasilía.
     *      29. október 2015, Paragvæ.
     *      2. júní 2016, Þýskaland.
     *      25. apríl 2017, Tékkland.
     *      9. apríl 1975, 12. september 1984 og 11. júní 1996, fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
     *      9. febrúar 1916 og 11. maí 1920, öldungadeild Bandaríkjaþings.
     *      19. maí 2015 og 26. janúar 2017, Danmörk.

    Önnur ríki og svæðisþing sem hafa viðurkennt þjóðarmorðið á Armenum eru þessi:
     *      10. nóvember 2000, Vatíkanið.
     *      2010, Skotland.
     *      Janúar 2010, Norður-Írland.
     *      27. janúar 2010, Wales.
     *      26. febrúar 2010, Katalónía.