Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 424 — 352. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um símenntun og fullorðinsfræðslu.
Frá Guðjóni S. Brjánssyni.
1. Hvaða áform eru uppi um stefnumótun í fullorðinsfræðslu og starfsemi símenntunarstöðva, ekki síst á landsbyggðinni?
2. Hvað líður samræmdu reiknilíkani fyrir starfsemina og áformum um að styrkja faglega og rekstrarlega umgjörð hennar?