Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 477 — 243. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Steindóri Valdimarssyni um þýðingu á íslenskum lögum og reglugerðum.
1. Hafa íslensk lög og reglugerðir verið þýdd á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Ef svo er, er óskað eftir að fram komi á hvaða tungumál var þýtt, hvenær þýðing var birt og hvenær þýðing var síðast uppfærð.
Undir málasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis falla um 55 lög frá ýmsum tímum. Af þeim hafa 30 lög verið þýdd á ensku og uppfærð miðað við síðustu lagabreytingar. Allar þýðingar eru birtar jafnharðan á vef Stjórnarráðsins. Reglugerðir eru aðeins þýddar ef talin er sérstök þörf á að þær séu aðgengilegar fólki sem ekki hefur íslensku að móðurmáli eins og t.d. reglugerð um Kvikmyndasjóð.
2. Hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess markað stefnu eða hyggjast marka stefnu um þýðingar, m.a. í ljósi þeirrar öru fjölgunar sem hefur orðið á fólki sem býr og starfar á Íslandi en hefur íslensku ekki að móðurmáli?
Árið 2013 var ákveðið að þýða öll lög sem heyra undir málasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis og talið er nauðsynlegt að eiga á ensku, og stendur sú vinna enn yfir. Þau lög sem enn hafa ekki verið þýdd falla í tvo flokka, annars vegar lög sem ekki er talin mikil þörf á að þýða, t.d. um félagsheimili, nr. 107/1970, og hins vegar lög sem ráðgert var að breyta og í þann flokk féllu t.d. kvikmyndalög, nr. 137/2001, sem var síðast breytt með lögum nr. 97/2018, sem tóku gildi 30. júní 2018. Sjá yfirlit yfir lög sem heyra undir málasvið mennta- og menningarmálaráðuneyti og hafa verið þýdd og sem eftir er að þýða á ensku. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um þýðingar á önnur tungumál.
Lög sem heyra undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Skáletrað: Lög sem ekki hafa verið þýdd á ensku.
21.a. Leikskólar.
– Lög um leikskóla, nr. 90 12. júní 2008.
21.b. Grunnskólar.
– Lög um grunnskóla, nr. 91 12. júní 2008.
21.c. Framhaldsskólar.
– Lög um framhaldsskóla, nr. 92 12. júní 2008.
21.d. Sérskólar og sérmenntun.
– Lög um framhaldsfræðslu, nr. 27 31. mars 2010.
21.e. Nám á háskólastigi o.fl.
– Lög um háskóla, nr. 63 13. júní 2006.
– Lög um opinbera háskóla, nr. 85 12. júní 2008.
– Lög um menntun kennara, nr. 16 12. mars 1947.
– Lög um Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands, nr. 33 20. apríl 1968.
– Lög um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands, nr. 37 27. mars 2007.
– Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87 12. júní 2008.
– Lög um náms- og starfsráðgjafa, nr. 35 3. apríl 2009.
– Lög um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26 31. mars 2010.
21.f. Námslán og menntunarkostnaður.
– Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21 25. maí 1992.
– Lög um námsstyrki, nr. 79 26. mars 2003.
21.g. Rannsóknastofnanir o.fl.
– Lög um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, nr. 67 11. maí 1990.
– Lög um Vísinda- og tækniráð, nr. 2 3. febrúar 2003.
– Lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3 3. febrúar 2003.
– Lög um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, nr. 40 12. júní 2006.
– Lög um Menntamálastofnun, nr. 91 10. júlí 2015.
21.h. Æskulýðsstarfsemi.
– Æskulýðslög, nr. 70 28. mars 2007.
21.i. Íþróttir.
– Íþróttalög, nr. 64 12. júní 1998.
– Lög um að banna hnefaleika, nr. 92 27. desember 1956.
– Lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58 16. maí 1990.
– Lög um Skákskóla Íslands, nr. 76 17. maí 1990.
– Lög um áhugamannahnefaleika, nr. 9 18. febrúar 2002.
21.j. Nemendur, skólar o.fl.
– Lög um námsgögn, nr. 71 28. mars 2007.
22.a. Þjóðminjar o.fl.
– Lög um menningarminjar, nr. 80 29. júní 2012
– Lög um skil menningarverðmæta til annarra landa, nr. 57 1. júní 2011.
22.b. Söfn.
– Safnalög, nr. 141 28. september 2011.
– Lög um byggingarsjóð Listasafns Íslands, nr. 41 23. maí 1959.
– Lög um Náttúruminjasafn Íslands, nr. 35 27. mars 2007.
– Lög um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140 28. september 2011.
22.c. Bókmenntir og bókasöfn.
– Lög um bókmenntir, nr. 91 28. mars 2007.
– Bókasafnalög, nr. 150 28. desember 2012.
– Lög um bókasafnsfræðinga, nr. 97 28. maí 1984.
– Lög um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, nr. 142 28. september 2011.
– Lög um skylduskil til safna, nr. 20 20. mars 2002.
– Lög um opinber skjalasöfn, nr. 77 28. maí 2014.
22.d. Leiklist.
– Leiklistarlög, nr. 138 23. desember 1998.
22.e. Tónlist.
– Lög um Sinfóníuhljómsveit Íslands, nr. 36 7. maí 1982.
– Lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75 14. júlí 1985.
– Lög um tónlistarsjóð, nr. 76 7. júní 2004.
22.f. Kvikmyndir.
– Kvikmyndalög, nr. 137 21. desember 2001.
22.g. Myndlist.
– Myndlistarlög, nr. 64 25. júní 2012.
22.h. Félagsheimili.
– Lög um félagsheimili, nr. 107 28. október 1970.
22.i. Greiðslur til menningarmála.
– Lög um listamannalaun, nr. 57 27. apríl 2009.
– Lög um heiðurslaun listamanna, nr. 66 25. júní 2012.
22.j. Íslensk tunga, táknmál og örnefni.
– Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61 7. júní 2011.
– Lög um örnefni, nr. 22 13. mars 2015.
27. Fjölmiðlar.
– Lög um fjölmiðla, nr. 38 20. apríl 2011.
– Lög um prentrétt, nr. 57 10. apríl 1956.
– Lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23 20. mars 2013.
47.a. Höfundaréttur.
– Höfundalög, nr. 73 29. maí 1972.
– Lög um inngöngu Íslands í Bernarsambandið, nr. 74 5. júní 1947.
– Lög um heimild ríkisstjórnar að staðfesta Bernarsáttmálann, nr. 80 31. maí 1972.