Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 483 — 214. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um vopnuð verkefni og útköll sérsveitar lögreglu.
Í tilefni af fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra.
1. Hversu mörgum vopnuðum verkefnum og útköllum sinnti sérsveit lögreglu á árunum 2003–2017?
Vopnaburður sérsveitar ríkislögreglustjóra við verkefni. | |
2003 | 52 |
2004 | 38 |
2005 | 36 |
2006 | 42 |
2007 | 53 |
2008 | 48 |
2009 | 68 |
2010 | 63 |
2011 | 63 |
2012 | 72 |
2013 | 82 |
2014 | 79 |
2015 | 104 |
2016 | 108 |
2017 | 298 |
1/1–30/9 2018 | 177 |
2. Hver er skýringin á töluvert aukinni tíðni slíkra verkefna og útkalla á árinu 2017 umfram önnur ár?
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra hefur tilkynningum um fjölda vopnaðra einstaklinga fjölgað undanfarin ár og þar af leiðandi útköllum til að sinna þeim verkefnum, en ástæða þess er m.a. breyting á eðli brota og samsetningu brotamanna í landinu.
Fjöldi tilkynninga um vopnaða einstaklinga. | |
2011 | 65 |
2012 | 56 |
2013 | 65 |
2014 | 56 |
2015 | 68 |
2016 | 83 |
2017 | 174 |
1/1–30/9 2018 | 157 |
3. Hvaða breytingar hafa verið gerðar á starfsreglum, málaflokkum eða aðgerðavenjum lögreglu á undanförnu ári?
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra hafa ekki verið gerðar breytingar á þessum sviðum varðandi sérsveit ríkislögreglustjóra heldur er breyting á eðli brota og samsetningu brotamanna í landinu.
4. Er það í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í löggæslumálum að fjölga vopnuðum verkefnum og útköllum lögreglu? Ef ekki, stendur þá til að sporna við þessari þróun með einhverjum hætti?
Það er ekki stefna ríkisstjórnar að fjölga vopnuðum verkefnum eða útköllum lögreglu. Það er hins vegar hlutverk lögreglu að bregðast við þeim tilkynningum sem henni berast í samræmi við ákvæði lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. svar við 2. lið fyrirspurnarinnar.
Öflug löggæsla er ein af forsendum þess að öryggi borgaranna sé tryggt. Mikilvægt er að lögregla veiti eins góða þjónustu og mögulegt er á hverjum tíma í samræmi við það hlutverk sem henni er falið. Í því felst að gæta öryggis borgaranna með því að svara hjálparkalli hratt og örugglega, að stemma stigu við afbrotum, meðal annars með því að hafa afskipti þar sem brot, slys eða aðrar ófarir kunna að vera yfirvofandi og rannsaka brot og leiða hið sanna í ljós. Þessu hlutverki sinnir lögreglan á ýmsan hátt, svo sem með fyrirbyggjandi aðgerðum, fræðslu til almennings og samstarfi við ýmsa aðila hérlendis og erlendis, auk rannsókna mála.
Ráðist hefur verið í ýmsar aðgerðir og verkefni til að styrkja starf lögreglunnar á undanförnum árum. Má þar helst nefna viðbótarfjármagn sem varið hefur verið til eflingar löggæslu almennt í landinu, búnaðarkaupa og umfangsmiklar skipulagsbreytingar hjá lögreglunni með fækkun lögregluembætta úr 15 í 9 og aðskilnaði lögregluembætta og sýslumannsembætta árið 2015.