Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.
Þingskjal 490 — 327. mál.
Breyttur texti.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um undirbúningsvinnu við nýja skrifstofubyggingu Alþingis.
1. Hver var upprunaleg kostnaðaráætlun við undirbúningsvinnu við nýja skrifstofubyggingu Alþingis og hvernig var sú áætlun sundurliðuð?
Kostnaðaráætlun var 311.955.753 kr., sbr. fylgiskjal B í ráðgjafarsamningi sem sýnir sundurliðun:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver er núverandi staða uppfærðs kostnaðarmats miðað við sömu sundurliðun?
Verðbættur ráðgjafarsamningur í september 2018 hljóðaði upp á 345.841.321 kr.
3. Hversu oft hefur þurft að uppfæra teikningar nýbyggingarinnar, hver hefur kostnaður verið við uppfærslurnar og hvers vegna þurfti að uppfæra þær?
Ákveðið var að gera breytingar á hönnun byggingarinnar til að ná niður kostnaði og hefur sú hönnun kostað 23.155.598 kr. Tekið skal fram að þessar breytingar munu nýtast verkefninu með beinum hætti.
4. Hver tekur ákvörðun um að hannað skuli sérstakt hús fyrir forseta, eins og fyrirhugað er samkvæmt auglýstum teikningum, og hver ber ábyrgð á ákvörðun um að slíkt hús standist kröfur eða þarfir? Ef ábyrgðin á hvoru tveggja er á hendi forseta, telur forseti rétt að hann leggi bæði fram þarfalýsingu og samþykki hönnun?
Í samkeppnistillögunni, sem var valin af dómnefnd, er gert ráð fyrir sérstöku forsetahúsi sem hýsir þá starfsemi sem tengist forsetaembættinu. Ekki var óskað sérstaklega eftir slíku í samkeppnislýsingu.
5. Hafa notkunarkröfur til byggingarinnar breyst frá útboði og ef svo er, af hverju?
Nei, notkunarkröfur til byggingarinnar hafa ekki breyst.
6. Hefur hluta af hugmyndavinnu hönnuða verið hafnað? Ef svo er, eru reikningar greiddir vegna hönnunarvinnu sem ekki nýtist og ef svo er, hvers vegna? Ef hönnunin hefur tekið breytingum, telur forseti það vera merki um ónákvæmar kröfulýsingar?
Engri hönnunarvinnu hefur beinlínis verið hafnað heldur var ákveðið að gera breytingar á hönnun og minnka umfang byggingarinnar í ljósi þess að áætlað fjármagn dygði ekki til. Þetta felur í sér endurskoðun á fyrirliggjandi hönnun sem tekur fyrst og fremst til aðalhúss skrifstofubyggingarinnar. Hönnun annarra bygginga sem lokið var við mun nýtast síðar. Greiðslur fyrir endurhönnun hljóða upp á 23.155.598 kr. eins og fram kemur í svari við 3. tölul.
Ekki liggur fyrir hve stór hluti af fyrri vinnu hönnuða nýtist ekki með beinum hætti þar sem endurskoðun ráðgjafarsamnings um hönnunarþóknun er ekki lokið.
Það er eðlileg þróun að hönnun taki breytingum í hönnunarferli. Slíkar breytingar hafa yfirleitt verið til góðs enda mun ódýrara að breyta uppdráttum heldur en húsi sem þegar hefur verið reist. Slíkt þarf ekki að vera merki um ónógar kröfulýsingar sem þó eru ekki alltaf fullkomnar.
7. Hvaða kröfur hefur forseti gert til nýbyggingarinnar til að lágmarka viðhalds- og rekstrarkostnað hennar? Hvað tryggir helst að vel takist til á því sviði?
Í samkeppnislýsingu var sett fram umhverfisstefna fyrir bygginguna með kröfum sem eiga að tryggja þessi atriði. BREEAM-aðferðin svokallaða (e. Building Research Establishment Environmental Assessment Method) snýst um að hanna byggingar þar sem orkunotkun er minni, ending betri, viðhald minna og minni notkun skaðlegra efna. Samhliða frum-, for- og verkhönnun byggingarinnar fer fram greining á líftímakostnaði (e. life-cycle cost, LCC) með það að markmiði að lágmarka líftímakostnað byggingarinnar.
8. Hvernig hefur forseti tryggt að unnt verði að breyta skipulagi hússins án mikils kostnaðar þar sem fjöldi þingflokka getur verið breytilegur? Eru tæknilegar kröfur uppfylltar í ljósi þess að fjórða iðnbyltingin kallar á mikinn sveigjanleika í hönnun og nýtingarmöguleikum nýbygginga?
Kröfur um þetta voru í samkeppnislýsingu. Verkfræðistofan EFLA hefur með höndum tæknilega hönnun og hefur haft samráð við upplýsingatækniskrifstofu Alþingis og fleiri aðila til að tryggja að húsnæðið uppfylli tæknilegar kröfur til framtíðar og bjóði upp á sveigjanleika til að mæta mismunandi fjölda og stærð þingflokka.
9. Hefur Alþingi yfir húsakynnum að ráða sem teljast óhagkvæm í rekstri? Ef svo er, á hvaða forsendum byggist það mat? Hvers vegna er teikningum ekki breytt þannig að fyrirhuguð bygging rúmi allt starfsfólk þingsins og að unnt verði að leigja út eða ráðstafa á annan hátt húsnæði í eigu þingsins sem telst óhagkvæmt?
Með tilkomu þessarar byggingar þarf Alþingi ekki lengur að leigja húsnæði undir hluta starfseminnar sem er mjög óhagkvæmt vegna hás leiguverðs í Kvosinni. Það er einnig óhagræði af því að starfsemin dreifist milli margra húsa sem þar að auki eru mishentug til þeirra nota sem starfsemi þingsins krefst. Þetta veldur einnig því að þingflokkarnir búa ekki allir við sömu aðstöðu o.s.frv. Húsnæði sem Alþingi á við Kirkjustræti verður áfram nýtt undir aðra starfsemi en þá sem fram fer í þingsalnum og Skála. Nýbyggingin mun rúma skrifstofur þingmanna og fundarherbergi þingflokka og nefnda, og einnig vinnuaðstöðu starfsfólks nefndasviðs og þingflokka eins og upphaflega var áætlað. Þar með færist öll starfsemi Alþingis á Alþingisreit og verður samtengd.