Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 495  —  380. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um árangurstengingu kolefnisgjalds.


Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við umhverfis- og auðlindaráðherra að leggja fram frumvarp til breytinga á kolefnisgjaldi á þá leið að gjaldið hækki eða lækki í samræmi við árangur við að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt Parísarsamningnum árið á undan og markmið við að ná kolefnishlutlausu Íslandi fyrir 2040. Ráðherra leggi frumvarpið fram eigi síðar en á vorþingi 2019.

Greinargerð.

    Hnattræn hlýnun jarðar sökum kolefnisútblásturs af mannavöldum er stærsta ógn sem steðjar að mannkyni. Álagningu kolefnisgjalds hefur verið beitt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og er ein þeirra aðferða sem hefur bein áhrif á fjárhagslega afkomu fyrirtækja og einstaklinga.
    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, um að kolefnisgjald hækki eða lækki með hliðsjón af því hvernig gengið hefur að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt Parísarsamningnum árið á undan og markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040, t.d. með því að miða við línulega minnkun á útlosun á ári.
    Til að tryggja enn betur árangur af þessari aðgerð er lagt til að gjaldið hækki að veldisvexti ef mjög illa gengur að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt Parísarsamningnum og markmiðinu um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040, en að sama skapi lækki gjaldið töluvert ef góður árangur næst við minnkun útblásturs.
    Hugmyndin og þróun þessa þingmáls átti sér stað á LÝSU – rokkhátíð samtalsins, sem haldin var á Akureyri haustið 2018, þar sem almenningi gafst tækifæri til að koma með tillögur og hugmyndir að aðgerðum í loftslagsmálum.