Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 532 — 310. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur um ferðamálastefnu.
1. Hver er staðan á vinnu við mótun ferðamálastefnu til langtíma eins og kveðið er á um í sáttmála ríkisstjórnarinnar að mótuð skuli?
Unnið er að stefnu í ferðamálum fyrir árin 2020–2030 en þingsályktun um ferðamál 2011–2020 var samþykkt á Alþingi sumarið 2011. Nýlega var lögð fram á Alþingi skýrsla um stöðu þeirra aðgerða á sviði ferðamála sem unnið hefur verið að á undanförnum árum.
Mikilvægi skýrrar stefnumótunar í ferðaþjónustu verður seint ofmetið og hafa stjórnvöld unnið, í góðu samstarfi við ferðaþjónustuna og sveitarfélögin, að fjölmörgum aðgerðum á sviði ferðamála. Mikill vöxtur greinarinnar hefur kallað á mikla samhæfingu og skjót viðbrögð. Stjórnstöð ferðamála hefur gegnt lykilhlutverki en í stjórn hennar sitja fjórir ráðherrar, fulltrúar sveitarfélaganna og Samtaka ferðaþjónustunnar.
Seinni hluta ársins 2017 var skipuð verkefnisstjórn um gerð nýrrar ferðamálaáætlunar 2020–2030 með aðkomu sex ráðuneyta. Næsta skref er að halda stefnumótunarvinnunni áfram með aukinni aðkomu greinarinnar á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála, en þar er nú unnið að gildissetningu sjálfbærnivísa samkvæmt álagsmati sem verður grunnur stefnumótunarinnar. Gert er ráð fyrir að drög að nýrri stefnu liggi fyrir vorið 2019.
2. Telur ráðherra þörf á að flýta þessari vinnu þar sem aðilar í ferðaþjónustunni hafa lengi kallað eftir slíkri heildarstefnu í ferðamálum og bæði Reykjavíkurborg og Akureyrarbær hafa mótað sér ferðamálastefnu til langtíma?
Eins og rakið er hér að framan er gildandi tíu ára þingsályktun um ferðamál frá árinu 2011 og er unnið að ferðamálastefnu fyrir tímabilið 2020–2030. Vinna við gerð hennar er í öruggum farvegi og er hennar að vænta á vormánuðum.
Þess má geta að ferðamálastefna Reykjavíkurborgar gildir fyrir tímabilið 2011–2020 og er nú unnið að mótun nýrrar stefnu. Ferðamálastefna Akureyrar gildir líkt og stefnur ríkisins og Reykjavíkurborgar í tíu ár og hefur gildistímann 2016–2026.