Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 533  —  284. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um nýsköpun í orkuframleiðslu.


     1.      Hvaða mismunandi tegundir orkuframleiðslu, sem ráðherra þekkir til, eru í þróun í heiminum og hvaða tegundir myndu henta vel á Íslandi?
    Reikna má með að fjölbreytni í orkuframleiðslu og orkunotkun aukist í framtíðinni. Orkunotkun mun líklega miðast við mismunandi þarfir og aðstæður sem mótast af kostnaði, framboði og eftirspurn. Jarðefnaeldsneyti víkur smátt og smátt fyrir umhverfisvænni kostum. Hraði breytinganna verður m.a. háður opinberri stefnumótun, t.d. markmiðum ríkisstjórnar um að innflutningi bifreiða sem nota jarðefnaeldsneyti og sprengihreyfla verði hætt 2030, en hraðinn verður einnig háður aðgerðum og hvötum sem ráðist verður í á grundvelli þeirra markmiða.
    Vatnsorka og jarðhitaorka skipa traustan sess í orkubúskap landsins en nýjar aðferðir við orkuöflun hafa styrkt stöðu sína með markvissri tækniþróun og almennri þekkingu á kostum þeirra. Ráðherra skilaði Alþingi nýlega skýrslu um nýjar aðferðir við orkuöflun. Þar er farið yfir þá orkukosti sem líklegast er að eflist á næstu árum. Meðal þeirra er vindorka sem getur nýst til jafns við bæði vatnsorku og jarðhitaorku til rafmagnsframleiðslu og afla má á samkeppnishæfu verði.
    Nýting jarðhitaorku eykst, bæði lághitaorku og háhitaorku. Auka má nýtingu lághitaorku með varmadælum en þær geta einnig nýtt volgrur, kaldara vatn og útiloft til upphitunar á lægra verði en rafmagnshitun.
    Djúpborun á háhitasvæðum, þar sem kólnandi kvikuinnskot eru á nokkurra kílómetra dýpi, gefur möguleika á aukinni orkuöflun. Talið er að neðan við 3.500 metra dýpi megi finna og nýta jarðhitavökva við þann þrýsting og hitastig sem fræðilega gæti verið um tíu sinnum auðugri af orku en venjuleg jarðgufa. Ef það gengur eftir getur framboð á rafmagni og gufu til hitunar og í iðnaðarferla aukist mikið.
    Hagnýting sjávarorku er áhugaverður framtíðarkostur sem hefur nokkuð verið rannsakaður. Almennt er litið svo á að hún sé enn sem komið er ekki samkeppnisfær við hefðbundnari orkuöflun. Sama gildir um sólarorku en hagnýting hennar gæti vaxið með nýrri og ódýrari rafgeymatækni.
    Framleiðsla vetnis sem orkubera í samgöngutæki hefur verið á dagskrá frá árinu 1998 þegar ráðist var í margra ára rannsókna- og þróunarverkefni með styrk frá ESB. Á þeim tíma var ekki séð fram á þá hröðu þróun rafgeyma sem orðið hefur hin síðari ár sem leitt hefur til mikillar þróunar rafmagnsbíla. Vetnið er engu að síður enn álitlegur framtíðarkostur með öðru eldsneyti og orkuberum.
    Lífeldsneyti er einkum notað í samgöngum. Metan ( CH4) er algengast þeirra hér á landi en það myndast þegar lífrænn úrgangur rotnar við loftfirrtar aðstæður, t.d. á urðunarstöðvum sorps og í landbúnaði. Metanól ( CH3OH) er einfalt alkóhól metanóls. Það hefur verið unnið úr vetni og koltvísýringi ( CO2) sem fanga má úr jarðhitakerfum eins og fyrirtækið Carbon Recycling International gerir í Svartsengi. Einnig hafa verið uppi hugmyndir um að fanga koltvísýring úr kísilmálm- og álvinnslu. Etanól ( C2 H5OH) er alkóhól og fimmta algengasta tegund endurnýjanlegs eldsneytis sem notað er í samgöngum á landi en það er innflutt.
    Lífdísill er framleiddur úr jurtaolíu, dýrafitu og fiskúrgangi. Framleiðsla lífdísils hefur verið stunduð um nokkurra ára skeið og hefur t.d. tilraunaframleiðsla á lífdísli úr vetrarrepju og lúpínu skilað áhugaverðum árangri. Þá eru í gangi rannsóknir á nýtingu smáþörunga í lífdísil. Mörg fleiri lífræn efnasambönd hafa verið skoðuð sem mögulegir orkugjafar í samgöngum.
    Fleiri tegundir orkuframleiðslu eru í þróun og fylgist Orkustofnun með framvindu hennar á alþjóðavettvangi, t.d. hjá Alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA). Nýsköpunarmiðstöð Íslands fylgist einnig með rannsóknum og þróun orkugjafa fyrir framtíðina eins og framvindu kjarnasamruna.

     2.      Hver er stefna stjórnvalda varðandi nýsköpun í orkuframleiðslu?
    Á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis er unnið að gerð langtímaorkustefnu og kemur þar fram stefna stjórnvalda til næstu ára, m.a. að því er varðar nýsköpun í orkuframleiðslu.
    Almennt má benda á að lengi hefur verið stefnt að því að hámarka nýtingu innlendra orkugjafa og lágmarka innflutning jarðefnaeldsneytis. Með því móti hefur náðst gríðarlegur þjóðhagslegur og umhverfislegur ávinningur sem endurspeglast best í hitaveituvæðingunni sem hófst um 1930 og rafvæðingu landsins sem hófst nokkru fyrr. Rannsóknir, þróun og hagnýting umhverfisvænna og endurnýjanlegra orkukosta verður áfram megináhersla í orkuöflun þjóðarinnar með tilheyrandi nýsköpun. Nýsköpun í orkuframleiðslu beinist því enn um sinn að því að leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi í samgöngutækjum og að þróa áfram nýja orkugjafa til hvers konar hagnýtingar. Samhliða eflist tæknistig og sú þekking á orkumálum eykst sem lagt hefur lóð á vogarskálar hagvaxtar og þekkingarútflutnings síðari ára.

     3.      Hversu miklir styrkir hafa verið veittir til nýsköpunar í orkumálum á undanförnum fimm árum, flokkað eftir tegund orkuframleiðslu, sbr. 1. tölul.?
    Eftirfarandi tölur eru byggðar á upplýsingum frá Orkusjóði og Rannís um styrkveitingar til nýsköpunar í orkumálum undanfarin ár.

Orkusjóður (styrkir frá 2013)
Vatnsorka 6 verkefni = 7,4 millj. kr.
Jarðhiti 3 verkefni = 5,7 millj. kr.
Vindorka 3 verkefni = 3,1 millj. kr.
Sjávarorka 2 verkefni = 5,5 millj. kr.
Varmadælur 12 verkefni = 50 millj. kr.
Samgönguverkefni (rafmagn og vetni) 2 verkefni = 5,4 millj. kr.
Lífeldsneyti 14 verkefni = 37,1 millj. kr.
Önnur orkuverkefni 13 verkefni = 25,3 millj. kr.
Samtals úr Orkusjóði: 139,5 millj. kr.
Rannsóknasjóður (styrkir frá 2015)
Rannsóknarverkefni sem tengjast nýsköpun í orkuframleiðslu 7 verkefni = 373 millj. kr.
Tækniþróunarsjóður (styrkir frá 2013)
Vatnsorka 1 verkefni = 14 millj. kr.
Jarðhiti 9 verkefni = 231,1 millj. kr.
Vindorka 3 verkefni = 64,9 millj. kr.
Sjávarorka 1 verkefni = 31 millj. kr.
Lífeldsneyti 4 verkefni = 78,6 millj. kr.
Önnur orkuverkefni 30 verkefni = 573 millj. kr.
Samtals úr Tækniþróunarsjóði: 992,6 millj. kr.
Markáætlun Vísinda- og tækniráðs (styrkir frá 2009)
GEORG – jarðvarmaklasi (jarðhitaverkefni) 490 millj. kr.
Rannsóknar- og nýsköpunarsjóður ESB, Horizon 2020, styrkir til nýsköpunar í orkuframleiðslu (styrkir frá og með 2014, gefnir upp í evrum)
Jarðhiti 8 verkefni = 21.022.239 evrur
Vindorka 3 verkefni = 2.626.969 evrur
Lífeldsneyti 2 verkefni = 663.750 evrur
Vetni 1 verkefni = 50.000 evrur
Önnur nýsköpunarverkefni 11 verkefni = 5.255.073 evrur
Samtals úr Horizon 2020: 29.618.031 evra (um 4,1 milljarður kr.)

     4.      Endurspegla styrkir stjórnvalda til nýsköpunar í orkuframleiðslu opinbera stefnu? Hver eru opinber markmið stjórnvalda með tilliti til hverrar tegundar orkuframleiðslu sem fær styrk og hvernig gengur að ná þeim markmiðum?
    Opinberir styrkir til nýsköpunar í orkuframleiðslu endurspegla áherslur stjórnvalda á hverjum tíma en verkefnin mótast jafnframt af áherslum þeirra sem stunda rannsóknir og þróun. Yfirlitið í 3. tölul. svars þessa gefur góða mynd af nýsköpun í orkumálum þar sem innlendir sjóðir styrkja rannsóknir og þróun minni innlendra verkefna og ryðja brautina til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir og nýsköpun. Í þessu sambandi má benda á mikilvægi jarðhitaklasans GEORG sem stóreflt hefur þekkingu á eðli og hagnýtingu jarðhitans og byggt upp þekkingu og færni sem er á margan hátt leiðandi í alþjóðlegu samhengi.
    Á grundvelli stefnu Vísinda- og tækniráðs um markáætlanir var jarðhitaklasinn settur á stofn en sú ákvörðun byggðist á mikilvægi þess að efla þann þekkingargrunn sem orðið hafði til á undanförnum áratugum og styrkja samkeppnishæfni landsins. Opinber stefna hefur þannig að nokkru leyti tekið mið af sérstökum styrkleikum okkar. Meginstefnan hefur þó verið að bjóða styrki á breiðum samkeppnisgrunni.