Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 567 — 418. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. kærunefnd húsamála,
b. úrskurðarnefnd velferðarmála: almannatryggingar,
c. úrskurðarnefnd velferðarmála: atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir,
d. kærunefnd jafnréttismála,
e. Félagsdómi,
f. ráðherra?
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.