Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 569  —  420. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
                  a.      áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema,
                  b.      málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
                  c.      mennta- og menningarmálaráðuneyti?
     2.      Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
     3.      Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?


Skriflegt svar óskast.