Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 570 — 421. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. úrskurðaraðila um sjávarútveg og fiskeldi,
b. úrskurðaraðila um matvæli og landbúnað,
c. matsnefnd um lax- og silungsveiði?
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.