Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 572  —  423. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.

     1.      Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
                  a.      úrskurðarnefnd um upplýsingamál,
                  b.      óbyggðanefnd,
                  c.      forsætisráðuneyti?
     2.      Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
     3.      Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?


Skriflegt svar óskast.