Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 576 — 427. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. úrskurðarnefnd raforkumála,
b. úrskurðaraðila á sviði ferðamála,
c. áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar,
d. áfrýjunarnefnd neytendamála,
e. áfrýjunarnefnd samkeppnismála,
f. kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa,
g. Samkeppniseftirlitinu,
h. úrskurðarnefnd Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda,
i. ráðherra?
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.