Ferill 456. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 671  —  456. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um kvartanir vegna forstöðumanna dómstóla.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Hafa dómstólasýslunni borist kvartanir vegna forstöðumanns dómstóls skv. 46. gr. laga um dómstóla eða hefur hún tekið upp slík mál að eigin frumkvæði? Ef svo er, hversu mörg mál hafa borist?
     2.      Hversu oft hefur tilmælum eða skriflegri áminningu verið beint til forstöðumanns í þessum málum og hversu oft hefur dómstjóra verið veitt lausn á grundvelli 2. mgr. fyrrnefnds ákvæðis?


Skriflegt svar óskast.